04.júl 15:00

Listamannaspjall | Þegar allt kemur til alls

Gerðarsafn

Listamannaspjall með Önnu Hrund Másdóttur, Loga Leó Gunnarssyni og Unu Björg Magnúsdóttur

Listamennirnir Anna Hrund Másdóttir og Logi Leó Gunnarsson leiða gesti um sýninguna Þegar allt kemur til alls, ásamt sýningarstjórunum Brynju Sveinsdóttur og Jónu Hlíf Halldórsdóttur, laugardaginn 4. júlí kl.15.
Þegar allt kemur til alls er samsýning með verkum eftir tólf íslenska samtímalistamenn. Verkin hafa verið sérvalin út frá því hvernig fegurðin í hversdagsleikanum, léttleiki, húmor og leikgleði birtast í þeim. Sýningin er viðbragð við aðstæðum í samfélaginu þessa stundina, hugleiðing um það sem máli skiptir fyrir núið, og innlegg í samtölin sem eiga sér stað þessa dagana um hvað drífur samfélagið áfram og hvað skiptir okkur máli.
Listamenn: Anna Hrund Másdóttir, Arna Óttarsdóttir, Gjörningaklúbburinn / Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir, Guðjón Ketilsson, Haraldur Jónsson, Hildigunnur Birgisdóttir, Klængur Gunnarsson, Kristín Dóra Ólafsdóttir, Logi Leó Gunnarsson, Ragnheiður Káradóttir, Una Björg Magnúsdóttir, Þór Sigurþórsson.
Sýningarstjórar: Brynja Sveinsdóttir og Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
maí
08
jún
Salurinn
12
maí
Bókasafn Kópavogs
13
maí
Bókasafn Kópavogs
14
maí
Bókasafn Kópavogs
14
maí
Salurinn
14
maí
Gerðarsafn
15
maí
Gerðarsafn
16
maí
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

18
maí
Salurinn
24
maí
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

14
maí
Gerðarsafn
15
maí
Gerðarsafn
24
maí
Gerðarsafn
15
jún
Gerðarsafn
21
jún
Gerðarsafn

Sjá meira