10.ágú 2025 13:00 - 15:00

Listsmiðja fyrir börn og fjölskyldur

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Verið hjartanlega velkomin að taka þátt í skemmtilegri listsmiðju með Berglindi Ernu Tryggvadóttur í Gerðarsafni sunnudaginn 10. ágúst frá kl. 13:00-15:00. Listsmiðjan er haldin í tengslum við sýningu Guðrúnar Bergsdóttur og er sunnudagurinn jafnframt síðasti sýningardagur þeirrar sýningar.

Þátttaka er börnum að kostnaðarlausu og öll velkomin!

Berglind Erna Tryggvadóttir (f. 1993) er myndlistarkona og rithöfundur. Hún stundaði nám í myndlist við Listaháskóla Íslands, Piet Zwart Institute og École nationale supérieure d’arts de Paris Cergy. Þá er hún með MA-gráðu í ritlist frá Háskóla Íslands.
Berglind Erna vinnur í ýmsa miðla, segir sögur í gegnum hluti, myndir og gjörninga. Hún leitar að því ótrúlega í hversdeginum og rannsakar gjarnan tengslin milli fólks og hluta í verkum sínum. Berglind Erna hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum og haldið nokkrar einkasýningar, hérlendis og erlendis. Hún hefur einnig dvalið í gestavinnustofum víðsvegar um heim, m.a. í Frakklandi, Finnlandi og Ungverjalandi.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
20
nóv
Salurinn
15:00

Njáluþing

20
nóv
Gerðarsafn
21
nóv
Bókasafn Kópavogs
21
nóv
Bókasafn Kópavogs
21
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
22
nóv
Salurinn
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
24
nóv
Bókasafn Kópavogs
25
nóv
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndaspjall

01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
11
des
23
des
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

20
nóv
Gerðarsafn
06
des
Gerðarsafn

Sjá meira