Hefur þú verið inni í myndavélinni?
Hallgerður Hallgrímsdóttir ljósmyndari leiðir fjölskyldustund í Gerðarsafni laugardaginn 25. janúar kl. 13-15. Hún býður fólki að búa til sína eigin camera obscura- pappakassamyndavél og kynnast því hvernig myndavélin virkar.
Smiðjan er í hluti af viðburðadagskrá sýningarinnar Afrit sem er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2020.
Á sýningunni Afrit eru verk sjö samtímalistamanna sem afbyggja hugmyndir okkar um ljósmyndir sem glugga að raunveruleikanum. Sýningin er í senn könnun á óljósu eðli ljósmyndarinnar og leikur með möguleika miðilsins þar sem látið er reyna á þolmörk hans.
Listamenn: Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Bjarki Bragason, Claudia Hausfeld, Hallgerður Hallgrímsdóttir, Katrín Elvarsdóttir, Pétur Thomsen og Þórdís Jóhannesdóttir
Sýningarstjóri: Brynja Sveinsdóttir.
Fjölskyldustundir á laugardögum eru í boði Menningarhúsanna í Kópavogi sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa, Salurinn og Héraðsskjalasafn.
Smiðjan er opin öllum og er þátttaka gestum að kostnaðarlausu!