24.nóv 2021 12:15 - 12:45

Menning á miðvikudögum | Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum

Gerðarsafn

Hádegisleiðsögn með Æsu Sigurjónsdóttur listfræðingi.

Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur verður með leiðsögn um sýningu listamannanna Bryndísar Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson, Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum miðvikudaginn 24. nóvember kl. 12.15. 
Samhliða sýningu þeirra Bryndísar og Mark í Gerðarsafni verður sýningin Visitasíur opnuð í Listasafninu á Akureyri. Æsa er sýningarstjóri sýningarinnar Visitasíur þar sem verk Bryndísar og Mark verða til sýnis og er sú sýning hluti af listrannsóknarverkefninu Ísbirnir á villigötum, unnið í samstarfi sérfræðinga á sviði myndlista, þjóðfræði og náttúru- og umhverfisfræði. Æsa býður því upp á áhugavert samtal á milli þessara tveggja sýninga.
Bryndís og Mark staðsetja list sína sem rannsóknar- og samfélagslist og nota gjarnan samspil manna og dýra í verkefnum sínum til að skoða málefni er varða sögu, menningu og umhverfið. Með listrannsóknum sínum kveikja þau hugleiðingar og samtal um hvernig heimurinn er að breytast og hlutverk okkar mannfólksins í þeim breytingum. Listamennirnir nálgast listsköpun sína með vistfræðilegri og heildrænni sýn. Verk þeirra eru þverfagleg í eðli sínu og taka gjarnan form innsetninga með skúlptúrum, fundnum hlutum, vídeóverkum, hljóði, teikningum, ljósmyndum og textum. 
Sýningarstjóri sýningarinnar Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum er Becky Forsythe.

Um Visitasíur:
Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson | Listasafnið á Akureyri (listak.is)

Mynd: Anton Brink.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

17
jan
Gerðarsafn
19
jan
Bókasafn Kópavogs
21
jan
Náttúrufræðistofa Kópavogs
21
jan
Bókasafn Kópavogs
21
jan
Menning í Kópavogi
23
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

24
jan
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

17
jan
Gerðarsafn
24
jan
Gerðarsafn
04
feb
02
maí
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira