Hugleiðsla

Hugleiðsla með Thelmu Björk Jónsdóttir á aðalsafni Bókasafns Kópavogs  „Leggjum inn á andlega bankann.“ Gestir sitja á stólum og Thelma leiðir tímann í gegnum öndun, möntrur, tónheilun og jákvæð inngrip. Tilgangurinn er að auka hamingjuna, virkja okkar innra ljós og eiga stund út af fyrir sig. Hver tími er 30 mín og það er frítt […]

Hugleiðsla

Hugleiðsla með Thelmu Björk Jónsdóttir á aðalsafni Bókasafns Kópavogs  „Leggjum inn á andlega bankann.“ Gestir sitja á stólum og Thelma leiðir tímann í gegnum öndun, möntrur, tónheilun (og jákvæð inngrip). Tilgangurinn er að auka hamingjuna, virkja okkar innra ljós og eiga stund út af fyrir sig. Hver tími er 30 mín og það er frítt […]

Gerðarverðlaunin

Verið hjartanlega velkomin á afhendingu Gerðarverðlaunanna, laugardaginn 3. febrúar kl. 15 í Gerðarsafni. Gerðarverðlaunin eru til heiðurs Gerði Helgadóttur myndhöggvara og eru veitt listamanni fyrir ríkulegt framlag til höggmynda- og rýmislistar á Íslandi. Gerðarverðlaunin eru nú veitt í fjórða sinn en fyrri handhafar þeirra eru Rósa Gísladóttir, Þór Vigfússon og Finnbogi Pétursson. Davíð Þór Jónsson, […]

Venjulegir staðir | Joe Keys og Haraldur Jónsson á Safnanótt

Listamennirnir Joe Keys og Haraldur Jónsson leiða gesti um verk sín á sýningunni Venjulegir staðir í Gerðarsafni. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir. — Á sýningunni Venjulegir staðir eru ljósmyndir Ívars Brynjólfssonar í samtali við verk Emmu Heiðarsdóttur, Haraldar Jónssonar, Joe Keys og Tine Bek; myndlist sem sprettur úr skynjun […]

Einar Aron á Sundlauganótt

Einar Aron er einn yngsti töframaður landsins en hefur þrátt fyrir það komið víða við og skapað sér nafn sem eftirsóttur töframaður, bæði meðal barna og fullorðinna. Hann á að baki á annað þúsund töfrasýningar og hefur kennt um 3.500 manns á öllum aldri, töfrabrögð. Einar Aron lofar frábærri skemmtun á Sundlauganótt í Sundlaug Kópavogs. […]

Leiðsögn | Unnar Örn Auðarson

Unnar Örn Auðarson myndlistarmaður verður með leiðsögn um Venjulega staði og rýnir í sýninguna fyrir gesti. Unnar Örn útskrifaðist árið 1999 frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk framhaldsnámi við Listaháskólann í Malmö 2003. Í myndlist sinni vinnur Unnar Örn með frásagnir og merkingu sögunnar og gefur fundnu efni samhengi og nýja þýðingu innan ramma […]

Stjörnuskoðun með Sævari Helga

Skyggnst verður upp í himininn á Safnanótt ásamt Sævari Helga Bragasyni, spáð í stjörnur og Júpíter skoðaður í gegnum sjónauka. Viðburðurinn fer fram við Náttúrufræðistofu Kópavogs og öll hjartanlega velkomin.

List og náttúra

Nú verður boðið upp á einfaldar smiðjur eða leiðsögn fyrir börn miðvikudaga frá kl. 15-17 í Gerðarsafni. Verkefnið er í samstarfi við Náttúrufræðistofu Kópavogs og gengur undir heitinu List og náttúra. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar eftir leikskóla eða skóla. Þorgerður, Hulda og Sævar halda utan um smiðjurnar. Fjölskyldur geta […]

Tilraunakvöld í Molanum á Safnanótt

Á Safnanótt föstudagskvöldið 2. febrúar kl 21:00 verður haldið tilraunakvöld listamanna í Molanum. Þetta er þriðja tilraunakvöldið sem haldið hefur verið í Molanum en þau hafa notið miklilla vinsælda hingað til. Tónlistafólk, uppistandarar, dansarar og myndlistamenn munu stíga á svið og sýna áhorfendum brot af fjölbreyttum verkum í vinnslu. Húsið opnar kl 20:30 þar sem […]