Skoðað og skynjað I Foreldramorgnar

Ungabörnum og foreldrum þeirra er boðið í skapandi samverustund á Gerðarsafni undir yfirskriftinni Skoðað og skynjað. Listaverk og umhverfið verður skoðað með skynjunarkubbum sem birta liti, form og birtu. Snertiskynið verður einnig örvað með ólíkum áferðum og  búið verður til listaverk með litaðri ull.

Fjölskyldustund | Jólamerkimiðar

Merkimiðasmiðja með listamanninum Eddu Mac þar sem kartöflustimplar verða notaðir til þess að búa til einstaka og gamaldags merkimiða fyrir jólapakkana. Smiðjan er opin öllum og er þátttaka gestum að kostnaðarlausu. Fjölskyldustundir á laugardögum eru í boði Menningarhúsanna í Kópavogi sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa, Salurinn og Héraðsskjalasafn.

Tónleikar | Lokahátíð Skapandi sumarstarfa

Fimmtudaginn 26. júlí, kl. 17:00 á neðri hæð Gerðarsafns verður boðið upp á ókeypis tónleika í tilefni lokahátíðar Skapandi sumarstarfa í Kópavogi. Tónlistarmennirnir sem fram koma eru fiðluleikararnir Ingibjörg Ásta Guðmundsdóttir og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir sem mynda dúóið Bachelsi, klassíski gítarleikarinn Brynjar Friðriksson sem blandar saman klassískri tónlist og popptónlist og Ingibjörg Steingrímsdóttir sem frumflytur […]

Bænafánasmiðja I Afmæli Barnasáttmálans

Haldið verður upp á 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi miðvikudaginn 20. nóvember. Að því tilefni verður boðið upp á bænafánasmiðju á Gerðarsafni fyrir grunnskólabörn í Kópavogi. Smiðjan er samhliða sýningunni Krakkaveldi, þar sem unnið er með óskir barna til stjórnvalda og framtíðarinnar. Notast verður við endurunnin efni og málningu og stuðst við form […]

Hrár Kjúlli í Jell-O | Sælir Kælir

Dagana 11.-14. júní mun listamannarekna farandsgalleríið Sælir Kælir taka sér bólfestu í anddyri Gerðarsafns. Í kælinum verður sýningin Hrár Kjúlli í Jell-O með verkum eftir Eyju Orradóttur & Marbendil.

Cycle

Dagskrá Cycle hátíðinnar daganna 24. – 28. október verður með ýmsu móti í ár.

Leiðin að skilningstrénu

Tónheilararnir Kamilla Ingibergsdóttir og Sólbjört Guðmundsdóttir bjóða gesti velkomna á hljóðbað til heiðurs listakonunni Hilmu af Klint. Gestum verður boðið í ferðalag inn á við með aðstoð leiddrar hugleiðslu og 18 alkemíu kristalsskála. Einstakur hljóðheimur skálanna aðstoðar gesti við að tengja bæði inn á við og við listaverkin. Í huga Hilmu af Klint hafði allt anda og  sál – […]

Síðasti sýningardagur Ó, hve hljótt

Síðasti sýningardagur Ó, hve hljótt verður á sunnudaginn 31. mars. Sýningin Ó, hve hljótt samanstendur af völdum kvikmyndum, hljóð- og vídeóverkum eftir bæði íslenska og alþjóðlega samtímalistamenn. Þó að verkin kunni að vera af ólíkum toga, í stíl eða efnistökum, eiga þau það sammerkt að bera með sér yfirvegaða kyrrð og djúpstæða friðsæld, líkt og sýningartitillinn […]