Get together

Get Together meet-ups will be held at the Library in Kópavogur, on the first floor in the Tilraunastofa – meeting room. The meet-ups are international meetings open to refugees, asylum-seekers, immigrants, and anyone seeking companionship. Whether you’re a family or an individual, you’re welcome to join us. Each week, we gather and do relaxing activities […]

Get together

Get Together meet-ups will be held at the Library in Kópavogur, on the first floor in the Tilraunastofa – meeting room. The meet-ups are international meetings open to refugees, asylum-seekers, immigrants, and anyone seeking companionship. Whether you’re a family or an individual, you’re welcome to join us. Each week, we gather and do relaxing activities […]

Draugasögustund fyrir börn

Í tilefni af Hrekkjavökunni ætlum við að vera með skemmtilega draugasögustund fyrir krakka á Bókasafni Kópavogs. Eyrún Ósk Jónsdóttir mun lesa draugasögur úr íslensku þjóðsögunum og vera með smá fræðslu um hvernig hægt er að sigrast á íslensku draugunum samkvæmt þjóðtrúnni. Vissir þú t.d. að prump getur fælt í burtu íslenska drauga? Og að hægt […]

PARABÓLA | Finnbogi Pétursson

Flökt. Sveifla. Púls. Taktur. Tími.Allt í kringum okkur eru eðlisfræðilegir kraftar að verki. Finnbogi Pétursson hefur gert það að ævistarfi sínu að skapa aðstæður þar sem áhorfandinn tekur eftir, skynjar, þessa krafta. Oft í gegnum bylgjur, sem heyrast stundum en í öðrum verkum sjást. Í Parabólu gerir hann takt Jarðar sýnilegan. Listamaðurinn notar hljóð en […]

NÚ EÐA ALDREI | Finissage | Hamskipti

Við kveðjum Hamskipti! Sunnudagurinn 20. október er síðasti sýningardagur sýningarinnar Hamskipti – Listsköpun Gerðar Helgdóttur og í tilefni verður finissage í Gerðarsafni kl. 15:30 og öll eru hjartanlega velkomin. Cecilie Gaihede sýningarstjóri verður með leiðsögn um sýninguna. Sýningin Hamskipti varpar ljósi á einstaka arfleifð Gerðar Helgadóttur í íslenskri myndlist sem ber vitni um djúpa leit […]

GÍA | List án landamæra

Sýning á verkum Gígju Guðfinnu Thoroddsen, eða Gíu, sem var listamaður hátíðarinnar árið 2017, af tilefni þess að Safnasafnið vinnur nú að bók um ævistarf hennar. Sýningin verður í Stúdíói Gerðar og opnar sunnudaginn 20. október klukkan 16:30. Þann 10. nóvember verður svo útgáfuhóf bókarinnar um Gíu, fylgist með! Gígja Guðfinna Thoroddsen, Gía, (1957-2021) bjó og starfaði […]

Ljóð fyrir loftslagið

Í smiðjunni fá börn tækifæri til að læra og hlusta á lög við ljóð eftir börn. Einnig fá börn tækifæri til að semja eigin ljóð um náttúruna, umhverfið, loftslagið, framtíðarsýn og drauma. Þau börn sem vilja, geta sett nýju ljóðin sín beint inn á veraldarvefinn á heimasíðuna ljodfyrirloftslagid.is þegar þau eru tilbúin. Kennarar smiðjunnar eru söngkonurnar Bryndís Guðjónsdóttir […]

Sól í sinni | Venesúelsk hátíð

English & Espanol below: 17:00 Sögustund á spænsku18:00 Venesúelsk ‏þjóðlagatónlist með Galaxia ParaísoMatarsmakk frá Venesúela, fánasmiðja og armbandagerð. Venesúelsk hátíð í Bókasafni KópavogsÁ löngum fimmtudegi á Bóksafni Kópavogs verður blásið til venesúelskrar hátíðar á Bókasafni Kópavogs! Komdu og smakkaðu ekta venesúelskan mat, upplifðu venesúelska ‏þjóðlagatónlist á strengjahljóðfæri og hlustaðu á sögustund á spænsku með leikaranum […]

List og náttúra

List og náttúra er einföld smiðja einn miðvikudag í mánuði frá kl. 16-17 í Náttúrufræðistofu Kópavogs. Smiðjan er liður af stærra verkefni sem unnið er í samstarfi Gerðarsafns og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar eftir leikskóla eða skóla. Börnin vinna með náttúrulegan efnivið í listsmiðju undir leiðsögn myndlistarkennarans […]

Grímusmiðja með ÞYKJÓ

Litríkar furðuverur verða til í skemmtilegri grímusmiðju með ÞYKJÓ. Hrekkjavaka er á næsta leyti og af því tilefni býður Bókasafn Kópavogs börnum og fjölskyldum til skapandi samveru þar sem hægt er að töfra fram sinn eigin hrekkjótta furðufugl með aðstoð hönnuða ÞYKJÓ. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir. Fjölskyldustundir á […]

Kúkur, piss og prump – Sævar Helgi Bragason

Sævar Helgi verður gestur okkar í haustfríinu og mun kynna nýjustu bók sína Kúkur, piss og prump og les upp úr henni fyrir krakkana. Öll velkomin. Allt í náttúrunni er hluti af hringrás. Þú líka! Meltingin þín leikur nefnilega algjört lykilhlutverk þar. Heimurinn verður svo fallegur og forvitnilegur þegar við uppgötvum hvernig allt er tengt. […]

Leðurblökusmiðja

Við erum komin í hrekkjavökugírinn á bókasafninu og ætlum því að vera með leðurblökusmiðju í haustfríinu þar sem krakkar geta komið og búið til sína eigin leðurblöku bókamerki á Bókasafninu og lært allt um leðurblökur á skemmtilegri fræðslu frá Náttúrufræðistofu Kópavogs.