Aðdáendaklúbbur Jane Austen

Við fylgjum eftir alveg hreint frábærum stofnfundi Aðdáendaklúbbs Jane Austen með bókamessu á Bókasafni Kópavogs. Fjallað verður um bækur Jane Austen og þeim bókum sem þýddar hafa verið á íslensku gert hátt undir höfði. Þær eru Hroki og hleypidómar, Aðgát og örlyndi og Emma. Dagskrárstjórn og fræðsla: Kristín Linda sálfræðingur, formaður aðdáendaklúbbsins Sérstakur gestur: Salka Guðmundsdóttir þýðandi […]

Leikur að ljósi og litum | Listsmiðja í vetrarfríi

Komið að gera tilraunir með ljós og litaðar filmur og búum til listaverk úr öllum regnbogans litum! Jóhanna Ásgeirsdóttir verður með listsmiðju fyrir börn og fjölskyldur þeirra í vetrarfríi grunnskólanna þriðjudaginn 25. febrúar kl 13:00 í Gerðarsafni. Efniviður verður á staðnum og þátttaka í smiðjunni er gestum að kostnaðarlausu. Hlökkum til að sjá ykkur! Jóhanna […]

Spilastuð fyrir ungmenni

Komdu að spila í vetrarfríinu! Spilavinir kíkja í heimsókn í ungmennadeildina með glás af spilum. Spilakennarar verða á staðnum, tilbúnir að leiðbeina þátttakendum. Myndakassi verður á 1. hæð og hægt að taka af sér skemmtilegar myndir. Öll ungmenni hjartanlega velkomin!

Grímusmiðja

Komdu og búðu þér til grímu í vetrarfríinu! Boðið verður uppá grímuföndur; glimmerlím, fjaðrir og alla heimsins liti til að lífga upp á vetrarfríið. Smiðjan verður á 1. hæð Bókasafns Kópavogs og Náttúrufræðistofu.Allur efniviður og leiðbeiningar á borðum á staðnum. Myndakassi verður á staðnum og hægt að taka af sér skemmtilegar myndir. Aðgangur er ókeypis! […]

Uppeldi barna | Foreldramorgunn

Helga Maggý og Erla Sif eru klínískir atferlisfræðingar sem báðar hafa reynslu af starfi í leik- og grunnskólum ásamt því að hafa mikinn áhuga á öllu sem tengist barnauppeldi. Í erindinu fjalla þær um áhrifaríkar uppeldisaðferðir sem skapa styðjandi heimilisumhverfi svo börn geti blómstrað. Gefin verða hagnýt ráð, m.a. varðandi hvernig gefa má skýr fyrirmæli, […]

Suður-amerísk tónlistarreisa | Heimstónlist

Andrés Ramón tónlistarmaður býður hlustendum í ferðalag um Suður-Ameríku þar sem hann flytur þjóðlög frá ýmsum löndum, spilar á mismunandi strengjahljóðfæri og syngur á spænsku og portúgölsku. Ferðalagið hefst á Andesfjallasvæðinu með þjóðlögum frá Perú, Bólivíu og Kólumbíu. Lögin hljóma við undirleik á charango, 10-strengja hljóðfæri sem er einkennandi fyrir tónlistarstefnur frá Andesfjöllunum, þar sem […]

Michael Richardt | DA | Stara

Michael Richardt fremur gjörninginn DA föstudaginn 7. febrúar í Gerðarsafni frá kl. 12-18 og síðan frá kl. 19-23. Verkið er hluti af sýningunni Störu. Öll eru velkomin! Michael Richardt (f. 1980) er sviðslistamaður sem sérhæfir sig í tímatengdum og langvarandi gjörningum. Heimildamyndin My Mother Is Pink um móður hans var tilnefnd í flokki listrænna heimildamynda […]

UNDIRALDA Á SAFNANÓTT

Yown (Jón Friðgeir Sigurðsson) og Petrichor (Alejandro Arias) nemendur úr tónveri Tónlistarskóla Kópavogs munu koma fram í bílakjallaranum við Hamraborg 6, gegnt Salnum á milli kl. 20:00 – 21:00. Þeir munu spila sveimandi raftónlist sem ómar í samtali við hljómburð bílakjallarans.

Vísindasmiðjan

Vísindasmiðja Háskóla Íslands verður hjá okkur í vetrarfríinu með lifandi og skemmtileg vísindasmiðju fyrir forvitin börn á öllum aldri. Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis. Um vísindasmiðjuna:Markmið Vísindasmiðjunnar er að efla áhuga ungmenna á vísindum með gagnvirkum og lifandi hætti, styðja við kennslu á sviði náttúru- og raunvísinda og miðla […]

Hvað er Carbfix?

Hvað er? er erindaröð á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs. Sérfræðingar úr ýmsum áttum eru fengnir til að varpa ljósi á ólík hugtök og fyrirbæri og skýra þau út á mannamáli. Hér verður fyrirbærið Carbfix skoðað út frá ýmsum sjónarhornum ásamt sérfræðingi frá carbfix sem ætlar að svara því hvað þetta margumrædda fyrir bæri er eiginlega? Fyrirlesturinn […]

Kjaftagelgjur og lífljómun

Að þessu sinni fjallar Vísindaskólinn um kjaftagelgjur og lífljómun, ófrýnilegar en heillandi skepnur! En þær tilheyra samnefndum ættbálki djúpsjávarfiska sem hafa aðlagast eilífðarmyrkri hafdjúpanna á einstakan máta. Ekki aðeins með aðlagaðri sjón, heldur eiga þær sameiginlegt að bera eins konar veiðistöng með ljósi á endanum sem gerir þeim hægara um vik við fæðuöflun. En hvaðan […]

Leslyndi með Jóni Kalman Stefánssyni

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst. Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur, mætir á Bókasafn Kópavogs í aprílbyrjun og fjallar um nokkrar bækur sem hafa skilið eftir spor. Aðgangur er ókeypis og […]