Uppskeruhátíð sumarlesturs

Hin árlega uppskeruhátíð sumarlesturs verður þriðjudaginn 22. ágúst á 1. hæð aðalsafns (barnadeild). Gunnar Helgason stuðbolti og rithöfundur mætir á aðalsafn og allir krakkar sem koma fá glaðning! Fimm heppnir vinningshafar verða dregnir út úr öllum happamiðum sumarsins. Hlökkum til að sjá alla sumarlestrarhesta!
Norrænn jazz

Óskar Guðjónsson, Poulsen Bros, Rógvi á Rógvu
bits of land and sea | Chili Seitz

Sunnudaginn 7. Júlí kl 14:00 í SÍM Gallery verður opnuð sýning á verkum þýsku listakonunnar, Chili Seitz. Sýningin skiptist í tvo hluta og fjallar um hringrás vatnsins og okkar. Meðfram sýningunni verða þrír fánar dregnir að húni fyrir framan Gerðarsafn. Opnunin hefst klukkan 14:00 í SÍM Gallery, með athöfn og gjörningi með tónverki eftir listakonuna […]
Leslyndi með Sigrúnu Eldjárn

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst. Sigrún Eldjárn kemur í heimsókn á Bókasafn Kópavogs í upphafi októbermánaðar og segir frá bókum sem hafa hreyft við henni. Aðgangur er ókeypis og […]
Ljósgjafar

Leiftur, birta, bjarmi, glóra. Íslensk tunga geymir fjölmörg orð yfir ljós. Í þessari notalegu samverustund geta börn og fjölskyldur komið saman og búið til marglitar luktir sem tendra ljós, hið innra og hið ytra, þegar myrkasti tími ársins er að ganga í garð. Allur efniviður verður á staðnum, aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin. Smiðjan […]
Friðardúfur á friðardegi

Á alþjóðlegum degi friðar ætlum við að gera saman litlar og fallegar friðardúfur úr silkipappír, stenslum, spotta og priki. Að smiðju lokinni verður hægt að taka dúfurnar með sér heim og leyfa þeim að flögra um loftin blá. Smiðjan hefst klukkan 13 og varir til klukkan 15. Á þeim tíma er hægt að koma hvenær […]
35 ÁRA GRAFFÍTI DJAMM

Graffití djamm í undirgöngunum í Hamraborginni verður opið gestum og gangandi. Komið og sjáið færustu graffara Íslands og gesti þeirra skapa verk í rauntíma, fáið leiðsögn og reynið ykkur við sköpun með spreybrúsann að vopni. Graffarar og gestirCES (nyc) MAST(nyc), KLASS (nyc)Osesh Bmoe, Gemsi, Kez, Sort, Youze,Dyer, Spoe, Lomek, Clone, Does. Dj Charlie D þeytir […]
17. júní í Kópavogi

Við höldum upp á 80 ára afmæli lýðveldisins með glæsibrag hér í Kópavogi. Söngsveitin Fílharmónía syngur ættjarðarlög í anddyri Salarins frá 13 til 13.30 og flytur þar meðal annars glænýtt lag Atla Ingólfssonar við ljóð Þórarins Eldjárn, Ávarp fjallkonunnar, sem samið var í tilefni lýðveldisafmælisins. Í Salnum verður hægt að nálgast bókina Fjallkonan. Þú ert […]
Open mic fyrir konur og kvár á Krónikunni

Verið velkomin á „open mic“ fyrir konur og kvár á Krónikunni í Gerðarsafni miðvikudaginn 19. júní kl. 17-19 í tilefni af kvenréttindadeginum. Bergþóra Snæbjörnsdóttir, rithöfundur og baráttukona, flytur tölu og heldur utan um viðburðinn. Sviðið verður opið og konur og kvárum boðið að koma fram og flytja ljóð, fyrirlestur, gjörninga, stand-up eða hvað sem er […]
Aukalag -Kvöldstund

Egill Gauti & Elías Geir Aukalag er hlaðvarpssería í 4 hlutum í umsjá Egils Gauta og Elíasar Geirs. Í hverjum þætti velja þeir félagar sér eina hljómplötu til þess að rýna í og greina og leggja þeir svo fyrir sig verkefnið að búa til eitt frumsamið aukalag á plötuna. Fjallað verður um hljóðheim platnanna, söngtexta, […]
Hlæja og gráta

Grímur Smári Hallgrímsson og Katla Yamagata Leikhópurinn Hlæja og gráta vinnur í sumar að leiksýningu um vini. Í einföldu máli kennir verkið áhorfendum að eiga vin. Þau munu leitast við að svara spurningum sem brenna á þeim, eins og t.d. “viltu gera eitthvað?” eða “nennirðu að hætta?”. Leikhópurinn vill upphefja hið hversdagslega með húmor í […]
Krullurnar þrjár

Anya Hrund Shaddock, Benedikt Gylfason og Kjalar Martinsson Kollmar Þríeykið vinnur að gerð stuttskífu í sumar. Lögin eru með íslenskum textum og í diskó-fönk stíl í anda ABBA, Boney M, Bee Gees og Earth, Wind and Fire. Hópurinn sér um að semja, útsetja og taka upp plötuna. Í ferlinu munu þau kynna sér ýmsa góða […]