12.okt ~ 16.okt

Rótarskot

Menning í Kópavogi

Y gallerý
Sýning á listahátíðinni List án landamæra.

Samsýning myndlistarfólks í Ygallery á dagskrá Listar án landamæra

Léttar veitingar í boði

ATH sýningin stendur aðeins til 16. október!

Listafólk:

Gauti Ásgeirsson
Helga Matthildur Viðarsdóttir
Lára Lilja Gunnarsdóttir
Sindri Leifsson

Aðgengi er GULT: Það er 20 cm hækkun frá götunni upp á gangstéttina við húsið. Það verður rampur fyrir fólk sem notar hjólastól til að komast upp á gangstéttina. Það er ekki aðgengilegt salerni á staðnum. Það eru blá bílastæði við nálæg hús en ekki alveg við þetta hús.

List án landamæra er listahátíð sem leggur áherslu á list fatlaðs fólks. Hátíðin var fyrst haldin árið 2003 á Evrópuári fatlaðra og hefur verið haldin árlega síðan. Hátíðin sýnir öll listform og stendur fyrir samstarfi á milli listamanna. Hátíðin er eini vettvangurinn á Íslandi sem leggur alfarið áherslu á listsköpun fatlaðs listafólks og hefur skapað sér sérstöðu innan menningarlífsins á Íslandi. Æ fleiri verða meðvitaðir um gildi hátíðarinnar í samfélaginu. Með því að skapa vettvang skapast tækifæri og leiðir opnast, jafnvel inn á nýjar brautir. Með því að leiða saman ólíka hópa og einstaklinga opnast alltaf fleiri og fleiri dyr og tækifæri. Sýnileiki ólíkra einstaklinga er mikilvægur, bæði í samfélaginu og í samfélagsumræðunni. Sýnileiki hefur bein áhrif á jafnrétti á öllum sviðum.

Hátíðin hefur stuðlað að samstarfi á milli ólíkra hópa og m.a. verið í samstarfi við listasöfn, starfandi listafólk, leikhópa og tónlistarfólk. Hátíðin hefur einnig stuðlað að umræðu um ímynd fatlaðra listamanna í listum og list fatlaðra m.a. í samvinnu við Háskóla Íslands, Þjóðminjasafnið og Norræna húsið. List án landamæra leggur áherslu á að list fatlaðs listafólks sé metin til jafns innan listheimsins og list ófatlaðs listafólks.

List án landamæra hlaut Múrbrjót Þroskahjálpar árið 2009 og var tilnefnd til Hvatningaverðlauna ÖBÍ árið 2011. Árið 2012 fékk List án landamæra Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

25
apr
Bókasafn Kópavogs
25
apr
Bókasafn Kópavogs
25
apr
Bókasafn Kópavogs
25
apr
Salurinn
25
apr
Gerðarsafn
25
apr
Gerðarsafn
27
apr
Bókasafn Kópavogs
27
apr
Náttúrufræðistofa Kópavogs
04
maí
Salurinn
06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs
03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Menning í Kópavogi

27
apr
Náttúrufræðistofa Kópavogs
30
apr
02
maí
Menning í Kópavogi
04
maí
Menning í Kópavogi
08
maí
Menning í Kópavogi

Sjá meira