Í smiðjunni kynnumst við möguleikum stop motion hreyfimyndagerðar. Við skoðum hvernig
er hægt að nota alls konar hluti í að búa til skemmtileg myndbönd og hvernig við getum búið
til okkar eigin persónur til að leika í þeim.
Krakkarnir fá tækifæri til að búa til sína eigin brúðu og láta hana lifna við með stop motion
hreyfimyndagerð. Eftir námskeiðið ættu allir að geta haldið áfram að búa til sín eigin stop
motion myndbönd heima.
Marta Björk Atladóttir er hreyfimyndagerðarkona og brúðusmiður. Hún lærði
teiknimyndagerð í Leeds Arts University og er nemandi í listkennsludeild Listaháskóla Íslands.
Útskriftarmyndin hennar, Inked In, hlaut verðlaun fyrir hönnun frá Royal Television Society
Yorkshire Awards.
Frítt er í smiðjuna en skráning er nauðsynleg.















