10.jan ~ 22.feb

Stúdíó Gerðar | Fræðslu- og upplifunarsýning

Gerðarsafn

10.01.2015 – 22.02.2015
Stúdíó Gerðar Helgadóttur er fræðslu- og upplifunarsýning þar sem sýningargestum býðst að líta á bak við tjöldin og forvitnast um listsköpun Gerðar út frá vinnustofunni. Sett hefur verið upp tilraunavinnustofa sem tekur mið af vinnustofu Gerðar Helgadóttur. Fjölbreytt og skapandi verkefni gefa gestum, ungum sem öldnum, tækifæri til að taka virkan þátt í uppbyggingu sýningarinnar. Með sýningunni leitast Gerðarsafn sérstaklega við að bjóða upp á skemmtilega möguleika í safnfræðslu fyrir börn á forskólaaldri og grunnskólanemendur, skólunum að kostnaðarlausu. Fjölskyldufólk er sérstaklega hvatt til að koma í heimsókn á eigin vegum og njóta skapandi samverustunda.
Guðrún Benónýsdóttir er hugmyndasmiður sýningarinnar í samstarfi við Gerðarsafn og leiddi hún opnar vinnusmiðjur fyrir ólíka aldurshópa á eftirfarandi dögum:
Laugardagur 10. janúar kl. 15 (opnun)
Laugardagur 24. janúar kl. 15
Föstudagur 6. febrúar kl. 20 (Safnanótt)
Laugardagur 21. febrúar kl. 15 (síðasti sýningardagur)

Gerðarsafn tók vel á móti hópum á öllum aldri sem höfðu áhuga á að koma í heimsókn í Stúdíó Gerðar Helgadóttur og bauð uppá leiðsögn.
Gerðarsafn tók vel á móti hópum á öllum aldri sem höfðu áhuga á að koma í heimsókn í Stúdíó Gerðar Helgadóttur og bauð uppá leiðsögn.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

13
des
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

14
des
Salurinn
14
des
Gerðarsafn
15
des
Menning í Kópavogi
13:00

Jólalundur

17
des
Bókasafn Kópavogs
18
des
Bókasafn Kópavogs
18
des
Bókasafn Kópavogs
18
des
Náttúrufræðistofa Kópavogs
19
des
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

14
des
Gerðarsafn
23
des
Gerðarsafn
11
jan
Gerðarsafn

Sjá meira