Sumarið er mætt í Menningarhúsin í Kópavogi!
Valda fimmtudaga í sumar verður lengri opnunartími eða til kl. 21.00 í Gerðarsafni og á veitingastaðnum Pure Deli samhliða tónleikaröðinni Sumarjazz sem fer fram í Salnum. Boðið verður upp á leiðsagnir og ýmsar óvæntar uppákomur.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis!
Nánari upplýsingar um Sumarjazz í Salnum má finna hér.