25.jún 2020 17:00 - 21:00

Sumarbræðingur I 25. júní

Gerðarsafn

Gerðarsafn opið til kl. 21:00 valda fimmtudaga í sumar

Gerðarsafn mun iða af lífi fimmtudagskvöldið 25. júní, en þá verður Sumarbræðingur Menningarhúsanna í Kópavogi haldinn í annað sinn. Bræðingurinn hefst með jazztónleikum í Salnum kl. 17.00 og verður fylgt eftir með líflegri dagskrá í Gerðarsafni sem verður opið til kl. 21.00 ásamt veitingastaðnum Pure Deli.

Dagskrá í Gerðarsafni fimmtudaginn 25. júní 
kl. 18.00 – Frumsýning á nýjum vínýlmottum í safnbúð Gerðarsafns eftir myndlistarmanninn Þórdísi Erlu Zoëga í samstarfi við Stúdíó Flöt. 
kl. 19.00 –  Tríó Sól flytur ljúfa tóna í samtali við verk Gerðar Helgadóttur 

Tilboð í safnbúð Gerðarsafns
Allar vörur í safnbúð Gerðarsafns verða á 10% afslætti fimmtudaginn 25. júní og fylgir frítt árskort í safnið með kaupum yfir 10.000 kr.

Sumarbræðingur Menningarhúsanna
Valda fimmtudaga í sumar verður lengri opnunartími eða til kl. 21.00 í Gerðarsafni og á veitingastaðnum Pure Deli samhliða tónleikaröðinni Sumarjazz sem fer fram í Salnum. Boðið verður upp á leiðsagnir og ýmsar óvæntar uppákomur.  

Nánari upplýsingar um Sumarjazz í Salnum má finna hér.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
01
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
15
des
Bókasafn Kópavogs
16
des
Bókasafn Kópavogs
16
des
Bókasafn Kópavogs
17
des
Bókasafn Kópavogs
17
des
Salurinn
17
des
Bókasafn Kópavogs
17
des
Bókasafn Kópavogs
18
des
Bókasafn Kópavogs
18
des
Gerðarsafn
22
des
23
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

18
des
Gerðarsafn

Sjá meira