17.jún 13:00

Sumardraumar á sautjándanum

Gerðarsafn

Þjóðhátíðarfögnuður Menningarhúsanna í Kópavogi

Draumkennd tónlist, draumafangarasmiðja og ævintýraþrautin Draumaslóð er á meðal þess sem boðið verður upp á 17. júní þegar Menningarhúsin í Kópavogi, ásamt listafólki á vegum Skapandi sumarstarfa í Kópavogi, taka saman höndum um metnaðarfulla og fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa undir yfirskriftinni Sumardraumar á sautjándanum.
Dagskráin stendur yfir frá kl. 13 og fram eftir degi með litríkum uppákomum af öllu tagi í bland við skapandi listsmiðjur fyrir alla fjölskylduna. Hægt verður að búa sér til sína eigin þjóðhátíðargrímu, fá tilsögn í koparvírasmíði og teiknimyndagerð, þræða Draumaslóð og leysa draumkenndan draumaratleik auk þess sem í boði verða alls kyns útileikir, sirkusatriði, sumarjazz, barnaævintýri, trúnóhorn og kvíðagjörningur svo fátt eitt sé nefnt. Ókeypis er á alla viðburði dagsins og opið á Reykjavík Roasters í Gerðarsafni frá kl. 08:30 – 18. Dagskráin teygir sig út í Sundlaug Kopavogs þar sem listafólk á vegum Skapandi sumarstarfs flytur brot úr verkum sínum í rjúkandi heitum potti.
DAGSKRÁ Á ÚTISVÆÐI MENNINGARHÚSANNA
13:00-13:30 & 15:00 – 15:30
Stökkönd VST þeytir draumkenndri tónlist.
13:30
Sirkussýning með loftfimleikum og skemmtikraftaköllum.
14:10
WE ARE NOT KIDS. Rakel Andrésdóttir og Andrés Þór Þorvarðarson, flytja lög úr glænýju barnaævintýri.
14:40
Bambaló, Herdís og Ingibjörg Linnett ásamt Sædísi Hörpu Stefánsdóttur flytja vel valda dægurlagasmelli í tilefni dagsins.
15:30
Húlladúllan glensar í áhorfendum og sýnir sirkushúllaatriði.
FORDYRI SALARINS KL. 17
Sumarjazz á þjóðhátíðardeginum. Margrét Eir og hljómsveit, flytja jazzskotna efnisskrá úr ýmsum áttum.
SKAPANDI SMIÐJUR OG LEIKIR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA FRÁ 13 – 16

Draumafangarasmiðja og Náttúrubók Náttúrufræðistofu Kópavogs.
Draumaslóð: Ævintýraþraut fyrir alla fjölskylduna.
Grímusmiðja ÞYKJÓ með Ninnu Þórarinsdóttur og Bókasafni Kópavogs.
Teiknimyndasmiðja KOMIK. Egill Gauti Sigurjónsson og Íris Eva Magnúsdóttir.
Koparvírasmíði með Silfursystrum – Gunnhildi Höllu Ármannsdóttur og Sigrúnu Birnu  Pétursdóttur.

UPPLESTUR OG UPPISTAND Í REYKJAVÍK ROASTERS, GERÐARSAFNI
13:00-13:15     
Katla Ársælsdóttir flytur hluta úr ljóða- og smásagnasafninu 204 Kópavogur,
13:15-13:30     
Inga Steinunn Henningsdóttir með sérfræðingaspjall.
13:30 – 13:45
Magnús Thorlacius les úr smásagnahefti sínu sem gengur undir vinnuheitinu Mygla í Kópavogi.
15:00-15:15     
Auður Helgadóttir með örsögur um hinseginleika
15:15-15:30     
Sviðslistahópurinn OBB – Jökull Smári Jakobsson og Vigdís Halla Birgisdóttir skoða ljóð  með einmanaleika, lífið, náttúruna og mennskuna í fyrirrúmi.
GJÖRNINGAR OG UPPÁKOMUR Á ÚTISVÆÐI
 – Tómas Óli Magnússon býður upp á málverkagjörning frá 9 – 17
– Sædís Harpa Stefánsdóttir rannsakar eigin kvíða og býður upp á gjörninginn „Kvíðahvísl“.
– DÝNAMÍK – Margrét Lára Baldursdóttir og Margrét Lóa Stefánsdóttir bjóða gestum að fá sér sæti í „Trúnóhorninu“ og spjalla um vináttuna.
– Vegglistahópur Kópavogs, Karen Ýr Sigurbjörnsdóttir, Sindri Franz, Ásdís Hanna Guðnadóttir og Katla Björk Gunnarsdóttir veitir innsýn í vinnuaðferðir sínar.
Í Gerðarsafni verður opið frá 10 – 18 en þar stendur yfir sýningin Hlutbundin þrá og er ókeypis á safnið á 17. júní.
Bókasafn Kópavogs og Náttúrufræðistofa Kópavogs verða opin frá 11 – 17.  Þar standa yfir fjölbreyttar sýningar sem hægt er að njóta auk þess sem listafólk á vegum Skapandi sumarstarfs, þau Katla Marín Stefánsdóttir, Marina Gerða Bjarnadóttir og Atli Pálsson sýna  innsetningar og vídeóverk í tilefni dagsins.
Sundlaug Kópavogs
14:30 – 16
Magnús Thorlacius og Katla Ársælsdóttir koma sér fyrir i heitum potti og lesa brot úr verkum sínum..

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

25
apr
Bókasafn Kópavogs
17:00

Sumardagsdjass með Tónlistarskóla FÍH

25
apr
Bókasafn Kópavogs
18:00

Bókabeitan og skvísubækurnar

25
apr
Bókasafn Kópavogs
13:00

Dúfur og dirrindí | Sumarsmiðja

25
apr
Salurinn
16:00

Sumargleði Bíbíar og Mandólín

25
apr
Gerðarsafn
15:00

Krakkaleiðsögn á sumardegi

25
apr
Gerðarsafn
15:00

Krakkaleiðsögn á sumardegi

27
apr
Gerðarsafn
12:00

Barnamenningarhátíð í Kópavogi

27
apr
Gerðarsafn
14:30

Geimveruslamm og brúðusmiðja

27
apr
Gerðarsafn
13:30

Málað með mold á Barnamenningarhátíð

04
maí
Salurinn
14:00

Herra Hnetusmjör

06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

Sjá meira

Gerðarsafn

25
apr
Gerðarsafn
25
apr
Gerðarsafn
27
apr
Gerðarsafn
27
apr
Gerðarsafn
27
apr
Gerðarsafn

Sjá meira