12.jan 2019 16:00

Sýningaropnun: Ó, hve hljótt

Gerðarsafn

Verið velkomin á sýningaropnun.

Sýningin Ó, hve hljótt samanstendur af völdum kvikmyndum, hljóð- og vídeóverkum eftir bæði íslenska og alþjóðlega samtímalistamenn. Þó að verkin kunni að vera af ólíkum toga, í stíl eða efnistökum, eiga þau það sammerkt að bera með sér yfirvegaða kyrrð og djúpstæða friðsæld, líkt og sýningartitillinn gefur til kynna.
 Sendiherra Frakklands á Íslandi, Graham Paul opnar sýninguna formlega. 
Verk listamannanna Doug Aitken, Charles de Meaux, Dominique Gonzalez-Foerster, Pierre Huyghe, Ange Leccia, Romain Kronenberg og Lornu Simpson, úr safneign CNAP – miðstöðvar myndlistar í Frakklandi, bera vitni um auðgi og margbreytileika franskrar kvikmyndasköpunar. Þau kallast á við verk eftir þrjá af fremstu vídeólistamönnum Íslands, þau Steinu, Doddu Maggý og Sigurð Guðjónsson.
Sýningarstjórn:
Pascale Cassagnau, CNAP & Gústav Geir Bollason, Verksmiðjan á Hjalteyri. Með stuðningi  Berg Contemporary, Reykjavík.

Fjölbreytt viðburðadagskrá fer fram samhliða sýningunni sem hefst með sýningarstjóraspjalli Pascale Cassagnau frá CNAP, sunnudaginn 13. janúar kl. 15.

Þetta úrval kvikmynda úr safni CNAP (Centre national des arts plastiques) eftir Doug Aitken, Charles de Meaux, Dominique Gonzalez Foerster, Pierre Huyghe, Ange Leccia, Romain Kronenberg, Lorna Simpson ber vitni mikillar fjölbreytni í gerð kvikmynda í Frakklandi. Kallast verkin á við grósku og frumleika íslenskrar listsköpunar á þessu sviði með verkum Steinu, Doddu Maggýjar, Sigurðar Guðjónssonar. 

Sýningarstjórar eru Pascale Cassagnau, CNAP, París og Gústav Geir Bollason, Verksmiðjunni á Hjalteyri. Sýningin var upphaflega sett upp í Verksmiðjunni á Hjalteyri (28.07. – 09.09.2018) í samstarfi Berg Contemporary, Reykjavík og CNAP, París.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
02
nóv
Bókasafn Kópavogs
03
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn
06
des
Gerðarsafn

Sjá meira