12.nóv 2025 18:00 - 20:00

Sýningaropnun | Skúlptúr/skúlptúr/performans

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Sýningin Skúlptúr/skúlptúr/performans verður opnuð við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 12. nóvember kl. 18:00 í Gerðarsafni og öll eru velkomin að vera viðstödd.

Sýningin hvílir á skilum – í titrandi rýmum á milli einnar tilveru og annarrar. Líf okkar er uppfullt af endalausum tilfærslum og breytingum – þöglum eða skyndilegum, lúmskum eða yfirgnæfandi. Augnablikið áður en augnaráð mætast, rýmið á milli líkama á dansgólfinu. Kyrrðin áður en sólin birtir upp svartnættið. Þögnin eftir að hafa yfirgefið herbergi fullt af fólki, og flöktið í skjá í myrkrinu. Róin eftir partýið, þegar hjartað slær enn ört en heimurinn virðist hægari. Titringurinn í hálsinum þegar þú ert að fara að segja það.

Sýningin Skúlptúr/skúlptúr/performans kannar skörun og titring á milli höggmyndalistar og gjörningalistar þar sem skynjun, form og merking hliðrast. Skúlptúr ummyndast í gjörning; gjörningur líður yfir í mynd og hljóð; hljóð hliðrast í skúlptúr. Ekkert er statískt. Listafólk sýningarinnar eru Kristín Helga Ríkharðsdóttir, Styrmir Örn Guðmundsson, Regn Sólmundur Evu, Curro Rodriguez, Jasa Baka, Post Performance Blues Band (Álfrún Örnólfsdóttir, Saga Sigurðardóttir, Hrefna Lind Lárusdóttir), Mjólk (Hlín Gylfadóttir, Karlotta Blöndal, Unnar Örn Auðarson) og Hekla Dögg Jónsdóttir. Sýningarstjóri er Jo Pawlowskx.

Sýningarröðin Skúlptúr/skúlptúr kannar skúlptúrinn í samtímanum og þróun þrívíðrar myndlistar, ekki einungis sem mikilvægur hluti listasögunnar heldur einnig sem hluti af lifandi sjónrænu tungumáli samtímalistarinnar. Sýningarröðin sækir í tilraunamennsku og framúrstefnu Gerðar Helgadóttur.

Ljósmynd: Kristín Helga Ríkharðsdóttir, Bogi, 2025

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

09
okt
Gerðarsafn
10
okt
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Salurinn
13:00

Dansdropi

11
okt
Salurinn
12
okt
Bókasafn Kópavogs
13
okt
Bókasafn Kópavogs
14
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

Sjá meira

Gerðarsafn

09
okt
Gerðarsafn
22
okt
Gerðarsafn
23
okt
Gerðarsafn

Sjá meira