02.apr 15:00 - 17:00

Sýningaropnun | Stöðufundur

Gerðarsafn

Verið öll hjartanlega velkomin að vera viðstödd opnun nýrrar sýningar

Verið öll hjartanlega velkomin að vera viðstödd opnun nýrrar sýningar, Stöðufundar, í Gerðarsafn þann 2. apríl kl. 15.

Sýningarstjórar eru Kristína Aðalsteinsdóttir og Þorvaldur Sigurbjörn Helgason.

Stöðufundur er verkefni sem veitir innsýn inn í hugarheim og væntingar tíu listamanna sem eru í fararbroddi sinnar kynslóðar. Listamennirnir samanstanda af fimm myndlistarmönnum og fimm rithöfundum sem eru ólíkir innbyrðis en eiga það sameiginlegt að hafa í verkum sínum fjallað um samtímann og stöðu ungs fólks í nútímasamfélagi. Stöðufundur er þó hvorki samtímaspegill né sögulegt yfirlit heldur kannski frekar eins og GIF-skrá sem spilast aftur og aftur og aftur til eilífðarnóns.

Sérstaða sýningarinnar liggur fremur í fókus hennar á persónulega upplifun listamannanna á sinni eigin fortíð, nútíð og framtíð og listrænni miðlun þess. Þá veitir samþætting listgreinanna tveggja, myndlistar og ritlistar, einstakt tækifæri til að eiga í samtali á þverfaglegum grundvelli og skapar listrænan skurðpunkt sem sýningin hverfist um.

Samhliða opnuninni verður gefið út bókverk í takmörkuðu upplagi með verkum rithöfundanna og listamannanna ásamt inngangstextum frá sýningarstjórum. Bókverkið er hannað af grafíska hönnuðinum Helgu Dögg Ólafsdóttur og verður til sölu í Gerðarsafni.

„Neysluhyggja, mörk efniskenndar og líkamleika, yfirvofandi loftslagsvá, eftirsjá, þrá okkar eftir viðurkenningu og tengingu við aðra, auk andlegrar vellíðunar eru ákveðin leiðarstef bókarinnar og sýningarinnar sem fylgir henni heim í hlað.“ – Úr texta Kristínu Aðalsteinsdóttur, sýningarstjóra.
Myndlistarmenn: Auður Ómarsdóttir, Björk Viggósdóttir, Fritz Hendrik IV, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Páll Haukur.
Rithöfundar: Bergur Ebbi, Fríða Ísberg, Halldór Armand, Jakub Stachowiak, Kristín Eiríksdóttir.

Ljósmynd: Fritz Hendrik IV, Rafmagnsþing, 2020

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

20
apr
Gerðarsafn
13:00

Together | Palestínsk útsaumssmiðja

21
apr
Salurinn
13:30

Ljóðrænn og kraftmikill er saxófónninn

23
apr
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

24
apr
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

24
apr
Gerðarsafn
12:15

Sjálfsmyndir og minningar

25
apr
Bókasafn Kópavogs
18:00

Bókabeitan og skvísubækurnar

25
apr
Bókasafn Kópavogs
13:00

Dúfur og dirrindí | Sumarsmiðja

25
apr
Salurinn
16:00

Sumargleði Bíbíar og Mandólín

25
apr
Gerðarsafn
15:00

Krakkaleiðsögn á sumardegi

04
maí
Salurinn
14:00

Herra Hnetusmjör

06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

Sjá meira

Gerðarsafn

20
apr
Gerðarsafn
24
apr
Gerðarsafn
25
apr
Gerðarsafn
27
apr
Gerðarsafn

Sjá meira