16.sep 2026 16:30 - 18:00

PISA-könnunin, úrval barnabóka og samstarf heimila við kennara

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn | 2. hæð

Hvað segja niðurstöður PISA-könnunarinnar okkur? Hvaða máli skiptir útgáfa barnabóka? Vilja börn yfir höfuð lesa? Hvert er hlutverk heimilanna? Þessar spurningar og margar fleiri brenna á þjóðinni eftir að niðurstöður PISA-könnunar voru kynntar og á sama tíma var kynntur samdráttur til Bókasafnssjóðs.

Við fáum til okkar Gunnar Helgason, rithöfund, Sigríði Ólafsdóttur, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Sigurð Sigurðsson, framkvæmdastjóra Heimilis og skóla til að fræða okkur um útgáfu barnabóka, mikilvægi þeirra, lesskilning, rýna í niðurstöður PISA-könnunarinnar og fjalla um mikilvægi heimilanna og samstarf heimila við kennara. Að því loknu mun Anna Lea Friðriksdóttir stýra umræðum og gestir fá færi á að spyrja spurninga. Logi Einarsson ráðherra Menningar-, nýsköpunar- og háskóla ásamt sérfræðingi og Óskar Haukur Níelsson frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu taka þátt í umræðum að erindum loknum.

Gunnar Helgason er einn af vinsælustu barnabókahöfundum Íslands og hefur áratuga reynslu af útgáfu bóka hér á landi, þar sem markaðurinn er smár. Hann er einnig fastagestur á bókasöfnum landsins þar sem hann hvetur börn á öllum aldri til lesturs.

Sigríður Ólafsdóttir er dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Meginrannsóknasvið hennar beinast að málþroska og læsi, þróun orðaforða, lesskilnings- og ritunarfærni hjá ein-, tví- og fjöltyngdum nemendum. Hún hefur rýnt í niðurstöður PISA-kannana, fjallað um hæfniþrep og hvernig slakur lesskilningur heftir skilning á samfélagslegri umræðu.

Sigurður Sigurðsson er framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, veitir foreldrum og foreldrafélögum ráðgjöf og hefur einnig unnið sem sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna hjá samtökunum og SAFT.

Anna Lea Friðriksdóttir er formaður Félags íslenskra bókaútgefenda og útgefandi og bóksali hjá Sölku. Hún er íslenskufræðingur að mennt og hefur starfað við bókaútgáfu og bóksölu nær allan sinn starfsferil.

Frítt er inn og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

16
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
17
okt
Bókasafn Kópavogs
17
okt
Bókasafn Kópavogs
18
okt
Salurinn
19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

17
okt
Bókasafn Kópavogs
17
okt
Bókasafn Kópavogs
19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira