Brennu-Njáls saga í tali og tónum
Hin fjölsótta Njáluvaka í Rangárþingi var hugarfóstur Guðna Ágústssonar, formanns nýstofnaðs Njálufélags. Engum vafa er lengur undirorpið að þetta stórkostlega bókmenntaverk á sér sterkar rætur í íslenskri þjóðarsál. Hin meitlaða frásögn af köldum kvennaráðum, einlægri vináttu, miskunnarlausum hefndarþorsta, ástum, átökum og örlögum litríkra sögupersóna magnast í meðförum Guðna sem hér hefur þjappað sögunni saman og mælir hana af munni fram eins og honum er einum lagið.
Með honum á sviðinu verður hetjutenórinn Gissur Páll Gissurarson óperusöngvari. Hann hefur alla tíð lagt mikla rækt við gamla íslenska söngtónlist og er því svo sannarlega réttur maður á réttum stað til þess að kallast á við Guðna um sögusvið Njálu auk þess að syngja Njálutengd og rammíslensk lög við undirleik Matthildar Önnu Gísladóttur.
Hér verður Brennu-Njáls saga sett í nýjan og spennandi búning og skreytt með óperusöng Gissurar Páls óperusöngvara!
Undir leikur á píanó Matthildur Anna Gísladóttir. Matthildur lauk bachelornámi í einleik frá Listaháskóla Íslands árið 2007. Næst lá leiðin til London þar sem hún lauk mastersnámi í meðleik við Royal Academy of Music. Árið 2014 útskrifaðist hún frá Alexander Gibson Opera School í Royal Conservatoire of Scotland með master í óperuþjálfun. Þar hlaut hún James H. Geddes Repetiteur verðlaunin. Þá hefur hún einnig komið að óperuuppsetningum m.a. hjá Íslensku Óperunni, Óperudögum í Kópavogi, British Youth Opera, Clonter Opera, Edinburgh Grand Opera, Lyric Opera Studio í Weimar, Scottish Opera, Royal Academy Opera og Co-Opera Co í London. Matthildur gegnir nú stöðu aðjúnkts í hljóðfæraleik við Listaháskóla Íslands auk þess sem hún er meðleikari við Menntaskólann í Tónlist.