Laugardaginn 26. maí 2018 bjóða meistararanemar í Listkennsludeild Listaháskóla Íslands til útskriftarviðburðar í Menningarhúsin í Kópavogi / Culture Houses of Kópavogur.
Þar kynna útskriftarnemendurnir lokaverkefni sín með margskonar hætti og gefst gestum meðal annars kostur á að taka þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum smiðjum sem eru lýsandi fyrir lokaverkefni nemenda.
Dagskrá stendur yfir frá kl. 13- 16, opin öllum og eru börn, ásamt forráðamönnum, sérstaklega boðin velkomin.