Lista- og menningarráð er kosið af bæjarstjórn í upphafi kjörtímabils og veitir ráðgjöf í menningarmálum. Ráðið sér jafnframt um útnefningau bæjarlistamanns og veitir styrki samkvæmt þeim reglum sem bæjarstjórn hefur samþykkt.
… starfar öflugur og hæfileikaríkur hópur starfsmanna, sem telur á bilinu 55-60 manns í rúmlega 33 stöðugildum. Mikilvægt er að hlúa vel að mannauði menningarmálaflokksins og búa þeim jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi sem gerir þeim kleift að njóta sín í starfi og styrkja sig í sessi með reglubundinni símenntun og fræðslu. Áhersla hefur verið lögð á að efla stjórnendur í hlutverkum sínum og byggja undir menningu sem einkennist af jákvæðum samskiptum, valdeflingu, viðurkenningu og vellíðan.
Árlega auglýsir menningar- og mannlífsnefnd eftir umsóknum um bæjarlistamann eða tekur við ábendingum um hann. Tilgangur með útnefningunum er að varpa ljósi á þá fjölmörgu og hæfileikaríku listamenn sem búa í Kópavogi og hafa átt þátt í að auðga menningarlíf bæjarins í gegnum árin. Það er meðal annars hlutverk bæjarlistamanns að deila listsköpun sinni með bæjarbúum það ár sem hann er valinn.
Árið 2001 var stofnað til ljóðasamkeppni á vegum lista- og menningarráðs Kópavogs og Ritlistarhóps Kópavogs, sem hlaut nafnið Ljóðstafur Jóns úr Vör, í minningu skáldsins.
Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs er haldin í tengslum við Ljóðstaf Jóns úr Vör, árlega ljóðasamkeppni Lista- og menningarráðs Kópavogs. Markmiðið með grunnskólakeppninni er að efla áhuga barna og ungmenna á ljóðagerð. Öll grunnskólabörn í Kópavogi geta tekið þátt.