Illgresið er okkar óvinur. Þetta eru kraftmiklar og frekar plöntur sem ógna því gróðurfari sem þegar er til staðar. Þær geta spírað mjög snemma á vorin og því berum við ábyrgð á að uppræta illgresið áður en það nær að mynda fræið. En ræturnar ná oft djúpt ofan í jarðveginn, og þá þarf meira til en litlar skóflur, einfara og hrífur.
Leiksýningin „Flokkstjórinn“ byggir á reynslu Hólmfríðar sem flokkstjóri í unglingavinnu en starfið veitti innsýn í samskipti unglinga, eineltismenningu og hve grimm mannskepnan getur verið þegar hún þráir ekkert heitar en að tilheyra hópnum. Er til slæmt fólk? Eða einungis slæm hegðun? Þarf virkilega alltaf að stíga í spor karlmanna til að öðlast virðingu? Jafnvel óvæntasta fólk getur brotið þig niður, sama hversu mikil völd þú ert með í rýminu. Sýningin var búin til í Skapandi sumarstörfum 2022, og fékk styrk frá Lista og menningaráðs til að sýna sýninguna í sumar.
Lengd: 40 mín.
Höfundar:
Hólmfríður Hafliðadóttir og Magnús Thorlacius
Leikkona:
Hólmfríður Hafliðadóttir
Leikstjóri:
Magnús Thorlacius
Tónlist:
Iðunn Einars
Aðstoð við plakat:
Tómas Óli K. M.
Myndbönd:
Hákon Örn Helgason
Sérstakar þakkir:
Vinnuskólinn í Kópavogi, Starfsfólk Molans, Steinunn hjá Starfsleikni, Soffía hjá Kópavogsbæ, fyrrum flokkstjórar, vinir og allir unglingarnir
Verkefnið er styrkt með framlagi úr lista- og menningarsjóði Kópavogsbæjar.