Bækur eru bestar | Read for Real
Áttu uppáhaldsbók? Ertu að lesa eitthvað spennandi núna? Eða langar þig einfaldlega að heyra hvað aðrir lesendur hafa verið að njóta?
Komdu í notalegan pop-up bókaklúbb, eitt skipti, þar sem engin ákveðin bók er á dagskrá. Hver og einn fær tækifæri til að segja frá bók að eigin vali, hvort sem það er bók sem hefur haft sérstök áhrif á þig, bókin sem er á náttborðinu þessa dagana eða jafnvel bók sem þú telur að fleiri ættu að lesa.
Þetta er einstakt tækifæri til að hittast, skiptast á lestrarábendingum og spjalla um bækur í góðum félagsskap. Ekki er nauðsynlegt að undirbúa sig sérstaklega og velkomið er að mæta bæði til að hlusta og taka þátt í umræðunum.
Öll hjartanlega velkomin.
Opni bókaklúbburinn er hluti af verkefninu Bækur eru bestar sem fagnar lestri, bókmenntum og þeim samtölum sem kvikna í kringum bækur.
Verkefninu lýkur svo með veglegum lokaviðburði þann 9. desember, þegar sænski rithöfundurinn Karin Härjegård kemur í Bókasafn Kópavogs í bókaspjall og útgáfuboð þar sem nýjustu verk hennar verða í brennidepli.
Viðburðurinn er hluti af Bækur eru bestar, samevrópska verkefninu Read for Real, European Authors Day sem er styrkt af Creative Europe. Markmið verkefnisins er að vekja áhuga á bóklestri með því að tengja lesendur og höfunda saman í lifandi samræður um bækur og lestur.
















