09.des 2026 18:00 - 20:00

Bókaspjall með Karin Härjegård og útgáfuboð

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn

Bækur eru bestar | Read for Real

Miðvikudaginn 9. Desember kl. 18:00 heimsækir sænski rithöfundurinn Karin Härjegård aðalsafn og segir frá bókum sínum, rithöfundaferli og þeim innblæstri sem hún sækir í fjöll og skóga Jämtlands í Svíþjóð.

Að loknu bókaspjalli verður haldið útgáfuhóf í tilefni af útgáfu fimmtu bókar Karin í íslenskri þýðingu.

Viðburðurinn fer fram á ensku. Túlkur verður á staðnum sem mun þýða frá ensku yfir á íslensku og gestum stendur til boða að fá heyrnartól. Takmarkaður fjöldi er af heyrnartólum svo skráning er nauðsynleg og fer fram hér.

Karin er rithöfundur, sögumaður, söngkona og prestur og hefur skrifað fjölda bóka sem hafa notið mikilla vinsælda meðal lesenda á Norðurlöndum. Verk hennar einkennast af hlýju, mannlegum samskiptum og persónum sem fá að vera bæði breyskar og margbrotnar, rétt eins og fólk er í raun og veru.

Áður skrifaði Karin sögulegar skáldsögur en á síðari árum hefur hún vakið mikla athygli fyrir hugljúfar samtímasögur sínar. Bækur hennar sækja innblástur í stórbrotna náttúru sænsku fjallanna og fjalla um ást, von, ný tækifæri og þau tímamót sem móta líf fólks.

Árið 2018 hlaut Karin menningarverðlaun Länstidningen og árið 2022 var Vöffluhúsið í fjöllunum kjörin sem ljúflestrarbók ársins 2022 í Svíþjóð og á Storytel. Í fyrra fékk Karin svo útgefendaverðlaunin Printzaren eftir að bækur hennar höfðu selst í meira en 200.000 eintökum.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur í notalegri bókastund með einum vinsælasta ljúflestrarbókahöfundi Norðurlanda.

Viðburðurinn er hluti af Bækur eru bestar, samevrópska verkefninu Read for Real, European Authors Day sem er styrkt af Creative Europe. Markmið verkefnisins er að vekja áhuga á bóklestri með því að tengja lesendur og höfunda saman í lifandi samræður um bækur og lestur.

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndaspjall

28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndaspjall

28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira