Menningarhúsin 28. nóvember kl. 14:30-17:00
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á Aðventuhátíð Kópavogsbæjar við menningarhúsin!
Það verður sannkölluð jólastemning þegar við fögnum upphafi aðventunnar með tónlist, dansi, jólaverkstæðum, skemmtilegum jólaverum og heitu kakói. Hátíðinni lýkur með því að ljósin verða tendruð á jólatrénu og jólasveinarnir mæta til leiks!
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!
DAGSKRÁ
Útisvæði / útisvið
15:00-16:15 DJ Sunna Ben á útisviði við menningarhúsin
15:00-16:30 Jólasirkus Pilkington Props og verur á sveimi!
16:20-16:30 Skólahljómsveit Kópavogs leikur við útisvið.
16:30-17:00 Dagskrá á útisviði. Jólaskemmtun og ljósin tendruð á útisvæði menningarhúsanna. Jólaálfarnir Þorri og Þura stýra dagskránni og skemmta. Söngkvartett Jólatímavélarinnar kemur fram og bæjarstjórinn tendrar á jólatrénu. Jólasveinar og jólaball á eftir!
Gerðarsafn
14:30-16:30 Jólaverkstæði ÞYKJÓ.
15:00-15:30 tónlistaratriði í sýningu Valgerðar Briem
Salurinn
14:30-16:30 Heitt kakó í boði!
14:30-15:00 Opnun á jólaljósasýningu 1. bekkjar Vatnsendaskóla
15:00-15:20 Brot úr Jóladraumum Íslenska dansflokksins
15:30-15:50 Tríóið Fjarkar kemur fram
16:00-16:20 Kórinn Viðlag tekur vel valin jólalög
Bókasafn Kópavogs
15:00-15:30 Æfum jólalögin saman með Sigga & Ingibjörgu
15:25-15:30 Pop-up frá Kórnum Viðlagi
15:30-16:00 Nemendur Tónlistarskóla Kópavogs koma fram á sviði á 2. hæð
Náttúrusafn Kópavogs
14:30-16:30 Föndrum jólaköngla fyrir smáfuglana
























