20.jan 13:00 - 15:00

Töfratákn | Vefsmiðja

Gerðarsafn

Komum og vefum saman litríka, litla skúlptúra sem kenndir eru við Ojos de Dios eða „augu guðs.“

Smiðjan hentar börnum og fjölskyldum. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Ojos de Dios eru helgisiðahlutir sem voru upprunalega gerðir af Huichol frumbyggjum Mexíkó. Vefnaðurinn er táknmynd sem tengist fyrst og fremst bænum um gott, langt líf, vernd og til að tryggja góða uppskeru á komandi sumri.

Endar prikanna tákna frumefnin fjögur, jörð, vatn, loft og eld, og áttirnar fjórar, norður, suður, austur og vestur. Miðaugað táknar sjálfa sólina og stendur fyrir kraftinn til að sjá og skilja hluti sem við venjulega getum ekki séð.

Að smiðju lokinni er hægt að fara með skúlptúrinn heim og fylla heimilið af nýjum krafti.

Viðburðurinn er liður í Fjölskyldustundum á laugardögum sem styrktar eru af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

18
maí
Gerðarsafn

Together | Palestínsk útsaumssmiðja

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

18
maí
Gerðarsafn
18
maí
Gerðarsafn
21
maí
Bókasafn Kópavogs
21
maí
Bókasafn Kópavogs
22
maí
Bókasafn Kópavogs
22
maí
Bókasafn Kópavogs
24
maí
Salurinn
20:00

HILDUR

27
maí
01
jún
Bókasafn Kópavogs
03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs
01
júl
06
júl
Bókasafn Kópavogs
12
ágú
17
ágú
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

18
maí
Gerðarsafn
18
maí
Gerðarsafn
02
jún
16
jún
Gerðarsafn
09
jún
Gerðarsafn
Heiðar Kári

Sjá meira