Hulda Margrét og Sævar Helgi á Náttúrufræðistofu Kópavogs taka á móti börnum í vetrarfríi í skemmtilegri eldfjallasmiðju.
Að lokinni fjörugri fræðslustund um eldfjöll í fortíð og nútíð verður hægt að búa til sitt eigið eldfjall í eldfjallasmiðju. Allur efniviður verður á staðnum og öll velkomin á meðan sætarúm leyfir.
Smiðjan fer fram í Gerðarsafni, í fræðslurými á fyrstu hæð.
Aðgangur er ókeypis.
Hlökkum til að sjá ykkur.