Börn og fjölskyldur geta sameinast í skapandi smíðavinnu við menningarhúsin á afmælisdegi Kópavogsbæjar.
Þar verður líka hægt að ganga á stultum, leika sér í kúlubrautum og með trékubba, blása risastórar sápukúlur og margt margt fleira.
Smiðjurnar standa yfir frá 13 – 16 og fara fram í tilefni af opnun nýrrar og endurbættrar barnadeildar bókasafnsins og nýrrar sýningar Náttúrufræðistofu, Brot úr ævi Jarðar.
Hlökkum til að sjá ykkur.