Skáldin og sviðslistakonurnar Eva Rún og Ragnheiður Harpa kenna ritsmiðju þar sem unnið er með að skrifa út frá staðsetningu. Smiðjan fer fram mánudagana 14. okt og 21. október kl 17 – 20 í bókasafni Kópavogs.
Í ritsmiðjunni verða gerðar tilraunir í skrifum út frá vissum staðsetningum. Þemað að þessu sinni er Kópavogur. Þátttakendur munu kynnast fjölbreyttum hliðum skapandi skrifa og læra að nýta hin ýmsu tól úr verkfærakistu höfundarins.
Leiðbeinendur eru Eva Rún Snorradóttir og Ragnheiður Harpa Leifsdóttir. Báðar starfa jöfnum höndum sem sviðslistakonur og rithöfundar og eru með vinnustofunni að leita leiða til að prófa áfram verkfæri úr sviðslistunum til að nýta í skrif sem enda ekki endilega í sviðslistaverki heldur bókmenntaverki.
Takmörkuð pláss í boði. Smiðjan er í boði MEKÓ og þátttaka er ókeypis.
Vinsamlegast sendið póst til að taka frá pláss: rjuparun@gmail.com