29.maí 2025 18:00 - 20:00

Fjöltyngd ungmennasmiðja | Adinkra – afrísk smiðja

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Í þessari spennandi ungmennasmiðju á fimmtudeginum langa í Gerðarsafni fá þátttakendur tækifæri til að umbreyta flíkum í samræmi við hefðir Asante fólksins í Ghana.

Adinkra táknin eiga sér langa sögu innan ganískrar menningar. Þau eru oft notuð til að skreyta hluti eins og skartgripi, leirmuni og fatnað en hvert tákn ber sína merkingu.

HVAÐ Á AÐ KOMA MEÐ:
Komdu með eigin flík, til dæmis langerma eða stuttermabol, til að skreyta með Adinkra táknum að eigin vali! Allt annað efni verður á staðnum. Flíkin má vera alls konar á litinn.

NÁNARI UPPLÝSINGAR:
-Smiðjan er fyrir ungmenni en öll eru velkomin á meðan húsrúm leyfir.
-Engrar reynslu krafist.
-Kíktu við hvenær sem er á milli 18 – 20 og vertu eins lengi og þú vilt.
-Smiðjan fer fram á ensku og íslensku
-Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin!

LEIÐBEINENDUR
Ahmed Fuseini er listamaður frá Gana sem er búsettur á Íslandi ‏þar sem hann stundar mastersnám í alþjóðlegum fræðum við Háskóla Íslands. Hann hlaut þjálfun í Adinkra list frá unga aldri.

Anne Rombach er ‏‎þ‎ýsk listakona sem b‎ýr og starfar á Íslandi. Anne lærði ljósmyndun í Listaháskólanum í Leipzig og útskrifaðist með MA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands þar sem hún stundar nú nám í Listir og Velferð.

Smiðjan er liður í viðburðaröðinni Together sem er skipulögð af Menningarhúsunum í Kópavogi í samstarfi við GETU – hjálparsamtök. Markmiðið er að stuðla að gagnkvæmum skilningi menningarheima og að vera samskipta- og sköpunarvettvangur fyrir fólk úr ólíkum áttum.

Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði og Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

30
apr
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

14
mar
Salurinn
14
mar
Bókasafn Kópavogs
14
mar
Bókasafn Kópavogs
14
mar
Bókasafn Kópavogs
15
mar
Salurinn
16
mar
Bókasafn Kópavogs
17
mar
Bókasafn Kópavogs
18
mar
Bókasafn Kópavogs
18
mar
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira