Fjölskyldustundin 18. október fer fram á Lindasafni.
Komum og vefum saman litríka, litla skúlptúra sem kenndir eru við Ojos de Dios.
Smiðjan hentar börnum á öllum aldri og öll eru hjartanlega velkomin!
Fjölskyldustundir á laugardögum eru notalegar samverustundir, gjarnan smiðjur, sem fara fram í menningarhúsunum í Kópavogi og eru styrktar af menningar- og mannlífsnefnd.