02.okt 2025 15:00 - 16:00

Lesið á milli línanna

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn | Handavinnuhorn

Á fundinum 2. október tökum við fyrir bókina ,,Sumarblóm og heimsins grjót“ eftir Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur.

Sumarblóm og heimsins grjót er grípandi örlagasaga um ást og vináttu, vonir og vonbrigði, flókin fjölskyldubönd – en ekki síst um aðstæður kvenna og óvenjulegar leiðir til að bjarga sér við erfiðar aðstæður.
Í byrjun síðustu aldar blasir fátt annað við fátækri stúlku í litlum firði en að giftast, eignast börn, strita ævilangt á sama stað eins og formæðurnar. En Sóleyjar bíður öðruvísi líf og örlögin bera hana burt úr firðinum, til móts við nýja tíma og nýjar hugmyndir. Þegar hún stendur uppi ein með nýfætt barn þarf hún að gangast undir samkomulag sem færir henni bæði frelsi og fjötra. Seiglan fleytir henni gegnum brimrót áfalla og erfiðleika, lífsgleði og traustir vinir halda henni uppi þegar reynir á. Og stundum virðist hamingjan í sjónmáli.
Þetta er fyrsta skáldsaga Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur sem byggir söguna að hluta til á raunverulegum atburðum og persónum.

Bókaklúbburinn hentar öllum hressum konum sem vilja hittast, lesa á milli línanna og spjalla um yndislestur á léttu nótunum. Lesin er ein bók á mánuði sem er svo rædd fyrsta fimmtudag í mánuði á fundum klúbbsins.

Allar konur velkomnar á meðan húsrúm leyfir. Hlökkum til að hitta ykkur!

Fylgist með í Facebook-hópnum Lesið á milli línanna | Bókasafn Kópavogs.

Hjartanlega velkomnar!

Deildu þessum viðburði

11
feb
Bókasafn Kópavogs
12
feb
Bókasafn Kópavogs
18
feb
Bókasafn Kópavogs
25
feb
Bókasafn Kópavogs
05
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Bókasafn Kópavogs
18
mar
Bókasafn Kópavogs
25
mar
Bókasafn Kópavogs
08
apr
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Gerðarsafn
04
feb
Náttúrusafn Kópavogs
06
feb
Gerðarsafn

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
06
feb
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

06
feb
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira