Aðdáendaklúbbur Jane Austen boðar til viðburðar á Bókasafni Kópavogs fimmtudaginn 19. febrúar kl. 18:00.
Dagskrá:
- Ávarp og dagskrárstjórn: Kristín Linda formaður klúbbsins
- Erindi: „Það er enginn munur á mér og Jane“. Austen sem huglæknir í nútímasamfélagi. Doktor Alda Björk Valdimarsdóttir dósent við HÍ. Höfundur bókarinnar: Jane Austen og ferð lesandans, skáldkona í þremur kvennagreinum nútímans.
- Erindi: „The Enduring Global Allure of Jane Austen.” Michael Kramp prófessor við Lehigh University, Pennsylvania USA. Ritstjóri bókanna: Jane Austen and Masculinity og Jane Austen og Critical Theory.
- · Umræðu og spjall.
Höfum gaman saman – tækifæri til að setja upp hattana!
Opinn og ókeypis viðburður.
Öll hjartanlega velkomin.













