Einar Skúlason leiðir göngu um Tröllabörn, Útilegumannahelli og fleira í Lækjarbotnum.
Vegalengd um 4,5 km og uppsöfnuð hækkun um 100 m. Gangan tekur um einn og hálfan tíma með stoppum.
Bílastæði er beint ofan við Waldorf skólann.
Við göngum framhjá Waldorf skólanum, skoðum Útilegumannahellinn, sjáum skátaskálann í Lækjarbotnum og lækinn sem rennur undan hlíðinni, skoðum Tröllabörn og fleira skemmtilegt.
Gengið verður á malarvegi, hálfgerðum kindaslóðum og á einum stað í hliðarhalla þegar hellirinn er skoðaður. Þetta er frekar greiðfært og hentar börnum en athugið að stöku bíll getur verið á ferðinni á hluta leiðarinnar.














