11.okt 2026 15:00 - 16:00

Rýnt í verk Valgerðar Briem með Brynju Sveinsdóttur

Gerðarsafn

Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn um sýninguna Valgerður með Brynju Sveinsdóttur safnstjóra Gerðarsafns klukkan 15:00 sunnudaginn 11. október.
Í leiðsögninni mun Brynja fjalla um lykilverk Valgerðar og gefa gestum betri innsýn inn í vinnuferil Valgerðar og tilurð verkanna.

Nánar um sýninguna:
Valgerður Briem (1914–2002) var myndlistarkona, kennari og frumkvöðull á sviði myndmenntar. Ævistarf hennar mótaðist í samspili eigin listsköpunar og kennslu, þar sem form, litir, efni og sjónræn hugsun urðu að leiðarljósi. Valgerður steig fyrst fram opinberlega sem myndlistarmaður á Haustsýningu Félags íslenskra myndlistarmanna árið 1980, þá 66 ára. Að baki þeirrar stundar lágu áratugir af einbeittri vinnu: teikningar, vatnslitir, vaxmyndir, skissur, letur og mynstur. Þegar fjölskylda Valgerðar færði Gerðarsafni um 1.640 verk á pappír árið 2006 varð umfang þessa ævistarfs fyrst fyllilega sýnilegt.

Gerðarsafn hlaut tveggja ára rannsóknarstyrk frá Safnasjóði til heildstæðrar frumrannsóknar á ævistarfi Valgerðar Briem, leidda af Cecilie Gaihede. Rannsóknin samtvinnar listfræðilega könnun á listsköpun hennar og miðlun í sýningu og útgáfu bókarinnar Myndvit – Arfleifð Valgerðar Briem, með fræðigreinum um listsköpun, kennslu og nálgun Valgerðar.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

05
okt
Bókasafn Kópavogs
06
okt
Bókasafn Kópavogs
07
okt
Bókasafn Kópavogs
07
okt
Bókasafn Kópavogs
07
okt
Bókasafn Kópavogs
09
okt
Gerðarsafn
10
okt
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Salurinn
13:00

Dansdropi

22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

09
okt
Gerðarsafn

Sjá meira