Morgunstund í myndlæsi
6. nóvember
10:00 – 11:00
Verið velkomin á morgunstund í myndlæsi föstudaginn 6. nóvember kl. 10:00 í Gerðarsafni, þar sem við tökum fram óvænt verk úr safneign Gerðarsafns og greinum það í sameiningu. Þorgerður Þórhallsdóttir, verkefnastjóri safneignar í Gerðarsafni, leiðir samræðurnar sem gestir taka þátt í.
Viðburðurinn er á íslensku.
Morgunstund í myndlæsi er viðburðaröð fyrir fullorðna í Gerðarsafni þar sem farið verður eftir aðferðum Sjónarafls. Sjónarafl er kröftugt fyrirmyndarverkefni Listasafns Íslands sem snýr að þjálfun myndlæsis fyrir börn í tengslum við námsskrá skólanna. Með því að nota þær aðferðir sem kynntar eru í Sjónarafli fá þátttakendur lykla sem auðveldar þeim að njóta myndlistar.
Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu og það verður heitt á könnunni.
Verkefnið er stutt af Safnasjóði.
Dagskrá morgunstunda 2026 er eftirfarandi:
9. október – 10:00 – 11:00
23. október – 10:00 – 11:00
6. nóvember – 10:00 – 11:00
20. nóvember – 10:00 – 11:00
4. desember – 10:00 – 11:00














