04.nóv 2026 12:15 - 13:00

Leslyndi | Pedro Gunnlaugur Garcia

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn

Pedro Gunnlaugur Garcia (f. 1983 í Lissabon) er rithöfundur og þýðandi af íslenskum og portúgölskum uppruna. Hann verður gestur Leslyndis 4. nóvember.

Pedro Gunnlaugur vakti fyrst athygli árið 2019 með skáldsögunni Málleysingjarnir, sem hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta og var lofuð af gagnrýnendum fyrir frumlegan stíl og óbeislaða frásagnargleði. Árið 2022 sendi hann frá sér skáldsöguna Lungu, fjölskyldusögu sem spannar margar kynslóðir, lönd og tímabil, en hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin og hefur verið þýdd yfir á sjö tungumál.

Í verkum sínum tekst Pedro Gunnlaugur á við fjölskyldutengsl, ástir, sjálfsmyndir og minningar, gjarnan með töfraraunsæjum blæ og fjörugu ímyndunarafli. Samhliða ritstörfum hefur hann lagt stund á bókmenntaþýðingar úr portúgölsku og ensku, og hefur m.a. þýtt verðlaunaskáldsöguna Jerúsalem eftir portúgalska rithöfundinn Gonçalo M. Tavares, gest Bókmenntahátíðar í Reykjavík árið 2023, og ljóðabókina Eignatal eftir brasilísku skáldsöguna Francescu Cricelli. Pedro Gunnlaugur leggur nú lokahönd á sína þriðju skáldsögu, sem ber vinnuheitið « A ».

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk; orðið er frjálst.

Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum.

Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

04
nóv
Bókasafn Kópavogs
18
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
02
des
Bókasafn Kópavogs
16
des
Salurinn
12:15

Lay Low

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

01
nóv
Gerðarsafn
02
nóv
Bókasafn Kópavogs
03
nóv
Bókasafn Kópavogs
04
nóv
Bókasafn Kópavogs
04
nóv
Bókasafn Kópavogs
05
nóv
Salurinn
20:30

Jónas Sig

05
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

02
nóv
Bókasafn Kópavogs
03
nóv
Bókasafn Kópavogs
04
nóv
Bókasafn Kópavogs
04
nóv
Bókasafn Kópavogs
04
nóv
Bókasafn Kópavogs
05
nóv
Bókasafn Kópavogs
05
nóv
Bókasafn Kópavogs
05
nóv
Bókasafn Kópavogs
07
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira