Sýningin Einskonar fjölskylda byggir á hugtakinu foreldrun, sem vísar til hugmynda um umhyggju, samveru, ábyrgð, varkárni og leik. Foreldrun er hér skilin ekki aðeins sem hlutverk innan hefðbundinna fjölskyldueininga, heldur sem aðferðafræði í listsköpun, sýningarstjórnun og samfélagslegri samveru.
Mynd: Moki Cherrry, ca. 1970.

















