07.nóv 2021 14:00

Leiðsögn sýningarstjóra | Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum

Gerðarsafn

Leiðsögn á ensku með Becky Forsythe sýningarstjóra.

Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum
Snæbjörnsdóttir/Wilson 2001-2021
Listamennirnir Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson fagna nú 20 ára samstarfi með yfirlitssýningu í Gerðarsafni. 
Sýningarstjóri sýningarinnar Becky Forsythe leiðir gesti um sýninguna 7. nóvember kl. 14. Athugið að viðburðurinn fer fram á ensku.
Þau staðsetja list sína sem rannsóknar- og samfélagslist og nota gjarnan samspil manna og dýra í verkefnum sínum til að skoða málefni er varða sögu, menningu og umhverfið. Með listrannsóknum sínum kveikja þau hugleiðingar og samtal um hvernig heimurinn er að breytast og hlutverk okkar mannfólksins í þeim breytingum. Listamennirnir nálgast listsköpun sína með vistfræðilegri og heildrænni sýn. Verk þeirra eru þverfagleg í eðli sínu og taka gjarnan form innsetninga með skúlptúrum, fundnum hlutum, vídeóverkum, hljóði, teikningum, ljósmyndum og textum. 
Sýningarstjóri: Becky Forsythe

snaebjornsdottirwilson.com/

Aðgangsmiði á safnið gildir, frítt fyrir handhafa árskorts.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

09
okt
Gerðarsafn
10
okt
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Salurinn
13:00

Dansdropi

11
okt
Salurinn
12
okt
Bókasafn Kópavogs
13
okt
Bókasafn Kópavogs
14
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

Sjá meira

Gerðarsafn

09
okt
Gerðarsafn
22
okt
Gerðarsafn
23
okt
Gerðarsafn

Sjá meira