06.des 2026 16:00

Jólatímavélin – ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur

Salurinn

Salurinn
4.990 kr.

„Svona’ eru jólin“, orti skáldið en um hvaða jól var ort? Jólin sem langamma og langafi upplifðu voru allt öðruvísi en jólin í dag og svo eru hátíðarhöldin fjölbreytt um allan heiminn. Jólatímavélin er ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur þar sem tónlist liðinna jóla og skemmtilegar sögur fléttast saman. Tilvalin leið til að vekja áhuga ungra huga á fjölbreytileika tónlistarinnar en á tónleikunum fáum við m.a. að heyra klassík, þjóðlagatónlist, gömul dægurlög og ferskar útsetningar af nýrri tónlist.

Kvartett Jólatímavélarinnar er skipaður einvalaliði íslenskra söngvara sem öll eru félagar í sönghópunum Kyrju og Yrkju. Þau munu leiða alla fjölskylduna í hljómfagurt tímaferðalag um jól, nú og fyrr; í torfbæjum er leikið á langspil við kertaljós, fjarri landsteinum kynnumst við dramatíkinni í Hnotubrjót Tschaikovskys og svo endum við aftur þar sem við lögðum af stað, á Íslandi árið 2026 – rétt áður en jólin nú og hér ganga í garð.

Samferða þessu verður kafað í hljóma, yfirtónasöng og mátt tónlistar til að flytja okkur í annan heim. Þessir skemmtilegu tónleikar eru tilvalin leið til að bjóða jólin velkomin í faðmi fjölskyldunnar. Hver veit nema mandarínur verði í boði?

Kvartett Jólatímavélarinnar eru Sólveig Sigurðardóttir (sópran), Sara Grímsdóttir (alt), Þórhallur Auður Helgason (tenór) og Philip Barkhudarov (bassi). Kvartettinn spratt upp úr sönghópunum Kyrju og Yrkju en Philip og Sólveig eru listrænir stjórnendur þeirra. Öll eru þau atvinnusöngvarar og hafa áralanga reynslu af margvíslegum kórsöng og óperuflutningi en brenna einnig fyrir það að miðla tónlist til áhorfenda á hrífandi, nærtækan hátt.

Viðburðurinn er um klukkutstund án hlés.

Deildu þessum viðburði

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
19
nóv
Bókasafn Kópavogs
26
nóv
Bókasafn Kópavogs
28
nóv
Salurinn
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
02
des
Bókasafn Kópavogs
03
des
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

16
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
17
okt
Bókasafn Kópavogs
17
okt
Bókasafn Kópavogs
18
okt
Salurinn
19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

16
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
18
okt
Salurinn
22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

Sjá meira