09.jan 2027 20:00 - 22:00

Óður til söngleiksins

Salurinn

Salurinn
5.900 kr.

SAMI STAÐUR, SAMA SJÓV, SÖMU STJÖRNUR!

Óður til söngleiksins snýr aftur!

Eftir ógleymanlega söngleikjatónleika Fuglabjargs síðastliðið sumar er komið að endurteknum leik! Þann 9. janúar gefst þér tækifæri til að upplifa Óður til söngleiksins á ný (nú, eða þá í fyrsta sinn ef þú misstir af þeim!)

Ekki láta þig vanta!

Leikfélagið Fuglabjarg, skipað sviðslistakonunum Guðrúnu Ágústu Gunnarsdóttur, Katrínu Ýr Erlingsdóttur og Tinnu Margréti Hrafnkelsdóttur, heldur stórtónleikana Óður til söngleiksins í Salnum í Kópavogi þann 9. janúar kl. 20:00. Þar sameina þær krafta sína með lifandi hljómsveit, bakröddum og dönsurum í meiriháttar söngleikjaveislu þar sem flutt verða mörg af ástsælustu lögum söngleikjasögunnar.

Á dagskránni má finna allt frá einlægum og tilfinningaþrungnum ballöðum yfir í kraftmikil hópatriði, meðal annars úr ástsælu söngleikjunum Vesalingunum, Litlu Hryllingsbúðinni og Hamilton. Með leiknum senum og húmor leiða söngkonurnar áhorfendur inn í töfraheim söngleikja og má þar finna brot úr verkum allt frá fyrri hluta 20. aldar til glænýrra verka. Tónleikarnir eru fullkomin skemmtun fyrir söngleikjaunnendur en ekki síður fyrir þau sem vilja kynnast hinum dásamlega heim söngleikja sem virðist vera á miklu stökki í íslensku samfélagi í dag!

Hljómsveit:

Gítarleikari og hljómsveitarstjóri: Matthías Helgi Sigurðarson
Píanóleikari: Jon Ingvi Seljeseth
Bassaleikari: Ævar Örn Sigurðsson
Trommuleikari: Þorsteinn Jónsson

Dansarar og kórmeðlimir:

Emil Agnar Sumarliðason
Hildur Kaldalóns Björnsdóttir
Sigurður Þorkell Vignir Ómarsson
Telma Ósk Bergþórsdóttir

Danshöfundur: Katrín Ýr Erlingsdóttir
Sviðshönnuður: Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir
Raddstýra: Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir

Deildu þessum viðburði

08
nóv
Salurinn
15
nóv
Salurinn
25
nóv
Salurinn
05
des
23
des
Salurinn
09
jan
Salurinn
10
jan
Salurinn
20
jan
Salurinn
29
jan
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

08
nóv
Salurinn
09
nóv
Bókasafn Kópavogs
10
nóv
Bókasafn Kópavogs
11
nóv
Bókasafn Kópavogs
11
nóv
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

11
nóv
Bókasafn Kópavogs
11
nóv
Gerðarsafn
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira

Salurinn

08
nóv
Salurinn
14
nóv
Salurinn
15
nóv
Salurinn
22
nóv
Salurinn
25
nóv
Salurinn
26
nóv
Salurinn
20:30

Ragga Gísla

28
nóv
Salurinn
03
des
Salurinn
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira