Blóðbönd er nýjasta tónleikaröð Salarins þar sem einstaklingar tengdir blóðböndum stíga saman á svið. Ólíkar stefnur, ólíkar kynslóðir – sameiginleg rót.
Hér eru á ferðinni einlægir tónleikar sem snúast um samspil, fjölskyldubönd og tónlist sem verður aðeins til á milli þeirra sem eiga sameiginlegan hljóðheim.
Það þarf vart að kynna systkinin Pál Óskar og Diddú Hjálmtýsbörn en þau hafa glatt Íslendinga í áratugi. Á þessum innilegu tónleikum fáum við einstaka innsýn inn í þetta fallega systkinasamband þar sem þau munu blanda tónlistarstílum sínum saman á nýjan og skemmtilegan hátt.
Ásgeir og Steini – 29.janúar
Diddú og Palli – 26.febrúar
Elísabet og Helga Möller – 12.mars
Svala og Krummi – 30.apríl























