Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari segir ferðasögur sínar í hádegisspjalli í tengslum við sýninguna Afrit. Einar Falur hefur lengi unnið sem blaðamaður á Morgunblaðinu en einnig sinnt listgrein sinni, ljósmyndun, með margvíslegum hætti. Hann hefur haldið margar sýningar á verkum sínum, hérlendis og erlendis, verið sýningarstjóri að ljósmyndasýningum, ritstýrt eða komið að gerð ljósmyndabóka, sjálfur skrifað bækur, kennt áfanga í ljósmyndun við hina ýmsu skóla og haldið fyrirlestra víða um heim.
Á sýningunni Afrit eru verk sjö samtímalistamanna sem ögra hugmyndum okkar um ljósmyndir sem glugga að raunveruleikanum. Sýningin er í senn könnun á óljósu eðli ljósmyndarinnar og leikur með möguleika miðilsins þar sem látið er reyna á þolmörk hans. Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2020.
Erindið er liður í dagskránni Menning á miðvikudögum á vegum Menningarhúsanna í Kópavogi sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa, Héraðsskjalasafn og Salurinn.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.