28.okt 2026 12:15 - 13:00

Raddir rafmagna | Birgir Stefánsson og Hrönn Þráinsdóttir

Salurinn

Salurinn

Klassískar söngraddir umbreyta þeim rýmum sem þær hljóma í. Þær geta verið stórar, smáar, mjúkar og kraftmiklar, fínlegar, fallegar, viðkvæmar – jafnvel svakalegar eða yfirþyrmandi. Þótt þær séu órafmagnaðar ferðast þær um rýmin eins og rafmagn, snerta við áheyrendum og hlaða þá nýrri orku.

Á þessum hádegistónleikum sem eru haldnir í samstarfi við Óperudaga, stinga tenórsöngvarinn Birgir Stefánsson og píanóleikarinn Hrönn Þráinsdóttir sér í samband við þema hátíðarinnar í ár: Raddir rafmagna rými. Efnisskráin er fjölbreytt og gestir fá tækifæri til að kúppla sig frá amstri dagsins, tengjast lifandi tónlist og ganga út fullhlaðnir að tónleikunum loknum. 

Birgir lauk nýlega meistaranámi við Tónlistarháskólann í Malmö og hefur starfað við óperuna þar í borg undanfarin misseri. Síðar í vetur ferðast hann víða um Danmörku í hlutverki Leanders í hinni vinsælu óperu Maskerade eftir Carl Nielsen og kemur meðal annars fram í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn.

Hrönn er einn reyndasti píanóleikari landsins og hefur komið fram með flestum klassískum söngvurum þjóðarinnar við fjölbreytt tilefni hér heima og erlendis. Birgir og Hrönn taka vel á móti gestum í Salnum í Kópavogi þar sem rödd og píanó mætast og úr verður rafmögnuð stemning. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Óperudaga og Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

04
nóv
Bókasafn Kópavogs
18
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
02
des
Bókasafn Kópavogs
16
des
Salurinn
12:15

Lay Low

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

Sjá meira

Salurinn

22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

05
nóv
Salurinn
20:30

Jónas Sig

08
nóv
Salurinn

Sjá meira