03.06.2017 – 20.08.2017
03.06.2017 – 20.08.2017
Á sýningunni Innra, með og á milli er Gerði Helgadóttur (1928-1975) boðið að taka þátt í samfelldu samtali listamannanna Ragnheiðar Gestsdóttur (IS), Theresu Himmer (DK/IS) og Emily Weiner (US). Samtal þeirra og könnun á ólínulegri túlkun á stað og tíma, tungumáli og þýðingum tók á sig áþreifanlega mynd haustið 2015 þegar þær umbreyttu rannsóknum sínum í sýninguna Speak Nearby í Soloway í Brooklyn, New York. Listamennirnir kynntust við MFA nám í School of Visual Arts í New York árið 2011.
Innra, með og á milli
Speak Nearby
Sýningunni í Gerðarsafni er ætlað að fanga vangaveltur um samhengi, tíma og skrásetningu sögunnar þar sem listamennirnir fjórir standa jafnfætis þvert á stað og tíma – einhvers staðar inn á milli.
Sýningarstjóri er Malene Dam, sem starfar í Kaupmannahöfn. Í starfi sínu hefur hún fengist við skrif um listir og menningu og sinnt sýningarstjórn sem gjarnan tengjast málefnum líðandi stundar, með áherslu á hinsegin og femínískan lestur og sögu, túlkun og erjur.
Mynd: Ragnheiður Gestsdóttir, Dregill, 2017