Árlega jólabókaspjall Bókasafns Kópavogs verður fimmtudaginn 19. nóvember kl. 20:00. Takið daginn frá!
Húsið opnar kl. 19:30, gengið inn á 2. hæð.
Þeir höfundar sem verða hjá okkur í ár verða auglýstir síðar. Líkt og venjulega koma þeir, lesa úr glænýjum skáldsögum sínum og taka þátt í líflegum samræðum um skáldverk sín.
Boðið verður upp á laufléttar veitingar og notalega stemningu. Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Jólabókaspjallið er orðið ómissandi liður í aðventunni og við hlökkum til að sjá ykkur.










