12.okt 13:00

Að ná í ljósið I Fjölskyldustund

Gerðarsafn

Tilraunir með kol og hnoðleður, ath. hlífðarfatnaður æskilegur.

Kolasmiðja með Guðrúnu Veru Hjartardóttir og Sigrúnu Halldóru Gunnarsdóttur þar sem ýmsar tilraunir verða gerðar með kol og hnoðleður til að dýpka tilfinninguna fyrir ljósi og skugga.
Nauðsynlegt er fyrir gesti að vera í viðeigandi fatnað þar sem kolin smita út frá sér og hægt er að búast við að vera kolugur frá andliti til handa.
Smiðjan er opin öllum og er þátttaka gestum að kostnaðarlausu.
Fjölskyldustundir á laugardögum eru í boði Menningarhúsanna í Kópavogi sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa, Salurinn og Héraðsskjalasafn.

Um kennara:
Guðrún Vera Hjartardóttir nam listir í Myndlista- og handíðaskólanum á árunum 1987–1991 og BA í Akademie Voor Beeldende Kunst í Enschede, Hollandi, á árunum 1991–1994 og lauk við listgreinakennslu (MA) frá Listaháskóla Íslands árið 2011. Hún leggur áherslu á skúlptúr og innsetningar í rými og hefur sýnt verk sín víða um Evrópu, í Bandaríkjunum og á Íslandi. Á meðal sýninga má nefna: Rætur (Gallerí Hlemmur), Beðið eftir meistaraverki (Gerðarsafn), Velkomin(n) í mannheima (Listasafn Reykjavíkur), Happy days, experiences of the double (Broadway Gallery, New York), Looking at others (Umjetnicki paviljon u Zagrep, Króatía).
Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir / Úa Von lauk námi á myndlistarbraut Listaháskóla Íslands (BA) áður hún hélt til Vínar í frekara listnám við Akademie der Bildende Kunste, þar sem hún útskrifaðist árið 2014. Hún vinnur í blandaða miðla; teikningar, skúlptúra, málverk, gjörninga, hljóð – og vídeó innsetningar. Hún vinnur verk sín út frá hugmyndum sem birtast í undirmeðvitundinni, á mörkum drauma og dagdrauma og hefur áhuga á að skoða eigin skynjun og skapandi ferli sem leið til sjálfsþekkingar.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

05
júl
Gerðarsafn
07
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs
09
júl
Bókasafn Kópavogs
09
júl
Bókasafn Kópavogs
10
júl
Salurinn
11
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

13
júl
Menning í Kópavogi
14
júl
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

05
júl
Gerðarsafn
23
júl
Gerðarsafn
06
ágú
Gerðarsafn
08
ágú
Gerðarsafn
20
ágú
02
nóv
Gerðarsafn
20
ágú
Gerðarsafn

Sjá meira