19.feb 2026 12:15 - 13:00

Aðalsteinn Ingólfsson | Leiðsögn um Hörð

Gerðarsafn

Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn Aðalsteins Ingólfssonar um sýninguna Hörður þann 19. febrúar klukkan 12:15 í Gerðarsafni.

Aðalsteinn Ingólfsson, f. 1948, nám í listasögu í Bretlandi, Svíþjóð og Ítalíu. Hann kenndi einnig við Myndlista-og handíðaskólann, Listaháskólann og Háskóla Íslands. Gagnrýni og menningartengd skrif við Vísi, DV, Fréttablaðið og RÚV. Hefur starfað við Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Íslands, og Safn Sigurjóns Ólafssonar, var sömuleiðis fyrsti fostöðumaður Hönnunarsafns Íslands. Hefur sett upp yfir 100 sýningar á Íslandi, Svíþjóð og Kanada. Hefur skrifað um 40 bækur um íslenska og færeyska myndlist, nýjasta bók hans kom úit fyrir skömmu og fjallar um Guðmund Elíasson, myndhöggvara, samtímamann Gerðar Helgadóttur og Harðar Ágústssonar í París.

Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum 1955-1978. Verkin á sýningunni þvera það sem hefðbundið væri flokkað sem myndlist og hönnun og tengja fullkláruð verk, undirbúningsverk og hugmyndavinnu saman. Í þessari formrænu könnun hans má finna það svið þar sem arkitektinn og ljóðskáldið tvinnast hvað mest saman, þar sem rannsakandinn og skaparinn ná saman í heildrænni hugsun um kjarna allrar listar.

Sýningarstjórn sýningarinnar er í höndum Brynju Sveinsdóttur og Studio Studio (Arnars Freys Guðmundssonar og Birnu Geirfinnsdóttur)

Deildu þessum viðburði

11
mar
Gerðarsafn
08
apr
Bókasafn Kópavogs
06
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

05
mar
Bókasafn Kópavogs
06
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

06
mar
Gerðarsafn
07
mar
Bókasafn Kópavogs
07
mar
Bókasafn Kópavogs
07
mar
Náttúrusafn Kópavogs
08
mar
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

06
mar
Gerðarsafn
11
mar
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira