Verið hjartanlega velkomin á aðventuhátíð Kópavogsbæjar laugardaginn 29. nóvember! Dagskrá verður á útisvæði og í menningarhúsum frá kl. 15-17. Dagskrá á útisviði hefst kl. 16:30 sem endar á því að Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri tendrar ljósin á jólatré Kópavogsbæjar.
Salka Sól verður kynnir á útisvæði. Jólatufti frá Pilkington Props verður á vappi utandyra ásamt jólasveinum. Karlakór Kópavogs tekur lagið og Skólahljómsveit Kópavogs flytur hátíðleg jólalög.
Í menningarhúsunum verða fjölbreyttar smiðjur fyrir allan aldur og tónlistaratriði frá kórum, tónlistarskólanum og strengjakvartett. Tækifæri gefst til að æfa klassísku jólalögin, gera næringarríka jólaköngla fyrir smáfuglana og gera föndur að taívönskum og úkraínskum sið.
Ratleikur
Í Gerðarsafni, Salnum, Náttúrusafni og Bókasafni Kópavogs verða stimpilstöðvar þar sem þú getur skapað þitt eigið jólakort í fjórum skrefum. Þú finnur allar fjórar stimpilstöðvarnar og smám saman birtist mynd á kortinu þínu.
DAGSKRÁ
Útisvæði / útisvið kl 16:30-17:00
Salka Sól verður kynnir og tekur nokkur lög
Jólatufti, jólasveinar og óvæntar uppákomur
Skólahljómsveit Kópavogs
Karlakór Kópavogs
Ávarp frá Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra. Kveikt á jólatrénu.
Dansað kringum jólatréð
Gerðarsafn
15:00-16:30 Stimpilstöð
15:00-16:30 Jólapappírsgerð
Salurinn
15:00-16:30 Stimpilstöð
15:00-16:30 Kakó og úkraínskt góðgæti
15:00-15:15 Kvennakórinn Blika
15:30-15:45 Kórinn Viðlag
16:00-16:30 Strengjakvartett
Bókasafn Kópavogs
15:00-16:30 Stimpilstöð
15:00-16:30 Klippiföndur frá Taiwan
15:00-16:30 Úkraínskt Pavuk jólaföndur
15:00-15:30 Æfum jólalögin saman
15:30-16:30 Tónleikar frá nemendum Tónlistarskóla Kópavogs
Náttúrusafn Kópavogs
15:00-16:30 Stimpilstöð
15:00-16:30 Ó!rói smiðja með ÞYKJÓ
15:00-16:30 Jólakönglar fyrir smáfuglana

















